Snorri Steinn heldur upp á 42 ára afmælið sitt í október og tekur við landsliðinu á sama aldri og Þorbjörn Jensson.

Snorri gerði Val tvisvar sinnum að Íslandsmeisturum áður en hann tók við landsliðinu en Þorbjörn tók við á sínum tíma eftir að hafa gert Val að Íslandsmeisturum þrjú ár í röð.
Þorbjörn tók við landsliðinu eftir HM 1995 og þjálfaði það til ársins 2001. Undir hans stjórn náði íslenska landsliðið meðal annars besta árangri sínum á heimsmeistaramóti frá upphafi þegar varð í fimmta sæti í Kumamoto árið 1997.
Þorbjörn var rúmum einum mánuði eldri þá en Snorri Steinn er núna.
Þegar Guðmundur Guðmundsson tók við íslenska landsliðinu í fyrsta sinn vorið 2001 þá var hann rúmu einu ári og þremur mánuðum yngri en Snorri er í dag. Þessir tvær farsælustu landsliðsþjálfarar síðustu áratuga voru því á mjög svipuðum aldri og Snorri þegar þeir tóku við liðinu í fyrsta sinn.

Alls hafa ellefu af landsliðsþjálfurum Íslands frá 1968 verið yngri en Snorri Steinn er þegar hann tekur nú við landsliðinu.
Yngsti maðurinn til að taka við landsliðinu var Hilmar Björnsson en hann tók við árið 1968 þegar hann var ekki orðinn 23 ára gamall. Jóhann Ingi Gunnarsson var rétt rúmlega 24 ára þegar hann tók við þjálfun íslenska landsliðsins árið 1978.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir hvaða landsliðsþjálfarar hafa verið eldri en Snorri Steinn og hvaða landsliðsþjálfarar hafa verið yngri þegar þeir voru ráðnir þjálfarar íslenska karlalandsliðsins í handbolta.
- Síðustu landsliðsþjálfarar og aldur þeirra þegar þeir tóku við
- -
- Yngri en Snorri Steinn (41 árs, 7 mánaða og 15 daga)
- 41 árs, 1 mánaða og 10 daga - Birgir Björnsson [1974]
- 40 ára, 3 mánaða og 18 daga - Guðmundur Guðmundsson [2001]'
- 40 ára, 1 mánaða og 7 daga - Janus Czerwinsky [1976]
- 39 ára, 6 mánaða og 15 daga - Karl G. Benediktsson [1973]
- 38 ára, 1 mánaða og 8 daga - Aron Kristjansson [2012]
- 36 ára, 11 mánaða og 28 daga - Bogdan Kowalczyk [1983]
- 34 ára, 8 mánaða og 14 daga - Hilmar Björnsson [1980]
- 33 ára, 10 mánaða og 8 daga - Þorbergur Aðalsteinsson [1990]
- 30 ára, 4 mánaða og 6 daga - Viðar Símonarson [1975]
- 24 ára, 1 mánaða og 12 daga - Jóhann Ingi Gunnarsson [1978]
- 22 ára, 9 mánaða og 21 daga - Hilmar Björnsson [1968]
- -
- Eldri en Snorri Steinn:
- 57 ára, 1 mánaða og 16 daga - Guðmundur Guðmundsson [2018]
- 52 ára, 2 mánaða og 4 daga - Geir Sveinsson [2016]
- 50 ára, 7 mánaða og 26 daga - Viggó Sigurðsson [2004]
- 47 ára, 2 mánaða og 2 daga - Guðmundur Guðmundsson [2008]
- 46 ára, 5 mánaða og 25 daga - Alfreð Gíslason [2006]
- 42 ára, 7 mánaða og 17 daga - Birgir Björnsson [1977]
- 41 árs, 8 mánaða og 21 dags - Þorbjörn Jensson [1995]