Fréttirnar séu „mestmegnis slúður og hrein ósannindi“ Eiður Þór Árnason og Ólafur Björn Sverrisson skrifa 6. júlí 2023 15:08 Helgi Magnússon, fjárfestir og eigandi Hofgarða ehf. Vísir/Vilhelm Helgi Magnússon, stjórnarformaður Hofgarða og stærsti kröfuhafinn í þrotabú Torgs sem gaf meðal annars út Fréttablaðið, gerir alvarlegar athugasemdir við frétt Mbl.is um skipti í þrotabúinu og segir hana í stórum dráttum ranga og villandi.
Skiptafundur fór fram í gær en í frétt Mbl.is sem birtist í morgun er meðal annars fullyrt að Óskar Sigurðsson, skiptastjóri Torgs ehf. hafi hafnað tæplega milljarða kröfu Helga í þrotabúið. Þá er haft eftir heimildum að Óskar meti nú hvort ástæða þyki til að rifta samningi sem gerður var um kaup Hofgarða á eignum tengdum DV.is af Torgi í mars 2021. Helgi segir báðar fullyrðingar rangar í samtali við Vísi. Hann var áður stærsti eigandi og jafnframt stjórnarformaður Torgs. Útgáfa Fréttablaðsins var skyndilega stöðvuð í lok mars og var Torg úrskurðað gjaldþrota nokkrum dögum síðar. Torg rak sömuleiðis sjónvarpsstöðina Hringbraut, Fréttablaðið.is og DV.is en rekstur DV.is og vefs Hringbrautar hefur haldið áfram eftir gjaldþrotið. Hofgarðar ehf. keyptu vörumerki og heimasíður Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar af Torgi árið 2021 fyrir 480 milljónir króna. Rangt að fullyrða að kröfunni hafi verið hafnað en ólíklegt að eitthvað fáist upp í hana Þórhallur Bermann, lögmaður á LEX lögmannstofu sem kemur ásamt Óskari að skiptum þrotabúsins, segir um fullyrðingar í frétt Mbl.is að ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort eitt eða annað sé mögulega riftanlegt. Allt of snemmt sé að segja til um það á þessum tímapunkti. „Það er kannski aðeins verið að færa í stílinn og aðeins verið að oftúlka. Það er þannig að við gjaldþrotaskipti þá sæta ráðstafanir á eignum skoðun, meðal annars með hliðsjón af riftunarreglum gjaldþrotalaga og það var bara gert með almennum hætti grein fyrir því og þá meðal annars getið um þessa sölu. Það hefur bara verið til skoðunar að rýna hvernig það fór fram en engin afstaða og engin ákvörðun verið tekin um það að fara í einhverjar aðgerðir eða neitt þess háttar. Það var bara verið gera grein fyrir með almennum hætti þessum helstu ráðstöfunum sem eru skoðaðar í því sambandi,“ segir Þórhallur. Þá sé rangt að fullyrða að kröfu Hofgarða í þrotabúið hafi verið hafnað. Um sé að ræða almenna kröfu og ekki sé tekin afstaða til almennra krafna við skiptameðferðina því talið sé fullvíst að ekki muni fást neitt upp í slíkar kröfur. Segir skrifin hrein ósannindi „Skrif mbl.is í dag um skiptafund í búi Torgs er mestmegnis slúður og hrein ósannindi. Sumt af því sem kemur þar fram er beinlínis atvinnurógur,“ segir Helgi Magnússon við Vísi. Blaðamaður miðilsins hafi ólíkt honum sjálfum ekki verið viðstaddur skiptafundinn í gær þar sem skiptastjóri hafi aðeins heimilað fulltrúum kröfuhafa að sitja fundinn. „Ýmsar rangfærslur birtast í skrifum mbl.is um þetta mál og eru sumar þeirra alvarlegar. Eins og til dæmis að skiptastjóri hafi hafnað kröfu Hofgarða að fjárhæð 987 milljónir króna. Það er rangt. Sú krafa er athugasemdalaust á lista yfir almennar kröfur sem lagður var fram á fundinum. Kröfu Hofgarða var ekki hafnað, þetta vita þeir sem sátu fundinn.“ Torg var til húsa á Kalkofnsvegi og var þar með skrifstofur Fréttablaðiðsins, DV.is og Hringbrautar. Vísir/Vilhelm Helgi segir að alvarlegasta rangfærslan sem fram komi í umræddri frétt sé að til skoðunar sé að rifta kaupum Hofgarða á vörumerkjum og réttindum Torgs samkvæmt samningi sem gerður var í mars 2021. „Kaupin voru þá greidd að fullu á háu verði. Skiptastjóri fór ítarlega yfir rekstur búsins á fundinum í gær allt frá upphafi og gat um helstu aðgerðir og atburði sem varða uppgjör búsins. Þar var ekkert minnst á umrædda riftun sem ranghermt var á mbl.is.“ Helgi með langstærstu kröfuna í búið Greint var frá því um helgina að kröfur í þrotabú Torgs nemi alls tæplega einum og hálfum milljarði króna og er langsamlega stærsta krafan frá Hofgörðum, félagi Helga. Þetta má lesa úr kröfuskrá þrotabúsins. Forgangskröfur nema alls tæplega 319 milljónum króna, þar af eru 232 milljónir samþykktar. Meðal forgangskrafna eru tvær kröfur frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna upp á 17,5 milljónir samanlagt. Þar af voru tæplega 7 milljónir samþykktar. Aðrar samþykktar kröfur eru litlar kröfur frá lífeyrissjóðum og launakröfur starfsmanna. Hæst þeirra er frá Garðari Erni Úlfarssyni, aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins, en hann fer fram á um 10,8 milljónir króna. Skiptastjóri samþykkti um 7,8 milljóna króna kröfu frá honum. Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri fer fram á um 8,1 milljón króna en skiptastjóri samþykkti 4,2 milljónir. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir sem stýrði sérblöðum fer fram á 6,2 milljónir króna og Björn J. Þorláksson 5,2 milljónir. Skiptastjóri samþykkir kröfur þeirra beggja upp að 4,1 milljón. Fréttin hefur verið uppfærð með svörum frá LEX.
Endalok Fréttablaðsins Gjaldþrot Fjölmiðlar Tengdar fréttir Launakröfur upp á allt að tíu milljónir og Helgi vill milljarð Kröfur í þrotabú Torgs ehf., sem gaf út Fréttablaðið sáluga og fleiri miðla, nema tæplega einum og hálfum milljarði króna. Langsamlega stærsta krafan er krafa frá Helga Magnússyni, eiganda Torgs, upp á rétt tæpan milljarð. Samþykktar kröfur upp á 235 milljónir samanstanda nánast alfarið af forgangskröfum starfsmanna. 2. júlí 2023 14:16 Mest lesið Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Viðskipti innlent Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Neytendur Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Neytendur Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar Neytendur Linkedin sektað um tugi milljarða Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Sætanýtingin aldrei verið betri í október ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn Aukning í ferðalögum til landsins Breytingar í framkvæmdastjórn Origo Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Akademias tekur yfir rekstur Avia Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar Spá auknu atvinnuleysi og hagvexti Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Misboðið hvernig staðið var að uppsögnum hjá nýjum eiganda Engin tilkynning um hópuppsögn í október Sjá meira
Launakröfur upp á allt að tíu milljónir og Helgi vill milljarð Kröfur í þrotabú Torgs ehf., sem gaf út Fréttablaðið sáluga og fleiri miðla, nema tæplega einum og hálfum milljarði króna. Langsamlega stærsta krafan er krafa frá Helga Magnússyni, eiganda Torgs, upp á rétt tæpan milljarð. Samþykktar kröfur upp á 235 milljónir samanstanda nánast alfarið af forgangskröfum starfsmanna. 2. júlí 2023 14:16