Nýja stjórn Íslandsbanka skipa eftirfarandi, í þeirri röð sem þau voru kosin:
- Haukur Örn Birgisson, hæstaréttarlögmaður, eigandi og framkvæmdastjóri Íslensku lögfræðistofunnar.
-
Agnar Tómas Möller, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
- Anna Þórðardóttir, sjálfstætt starfandi stjórnarmaður
- Helga Hlín Hákonardóttir, meðeigandi og ráðgjafi hjá Strategíu ráðgjafafyrirtæki
- Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Olís ehf
- Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel hf.
- Stefán Pétursson, fjármálastjóri EpiEndo Pharmaceuticals ehf.
Herdís Gunnarsdóttir og Páll Grétar Steingrímsson voru sjálfkjörnir varamenn í stjórn.
Valgerður ein tilnefndra sem komst ekki inn
Valgerður Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa ehf, var tilnefnd til stjórnarsetu af tilnefningarnefnd Íslandsbanka en hafnaði í áttunda sæti í kosningu hluthafa. Allir aðrir sem tilnefndir voru af tilnefningarnefndinni og Bankasýslu ríkisins fengu sætu í stjórn.
Helga Hlín var ein fjögurra sem gáfu kost á sér þrátt fyrir að hafa ekki hlotið tilnefningu. Hin þrjú voru þau Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi alþingismaður, Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og Elín Jóhannesdóttir, sem starfar hjá Vigri fjárfestingu ehf.
79,25 prósent hluthafa tóku þátt í fundinum og stjórnakjörinu.
Jón Guðni Ómarsson nýr bankastjóri Íslandsbanka ræddi við fréttastofu að loknum fundi. Hann sagði vissa veikleika sem þyrfti að laga í áhættumenningu en heilt yfir stæði bankinn og íslenskir bankar mjög traustum fótum.
Linda Jónsdóttir, nýr stjórnarformaður bankans, sagðist þurfa aðeins meiri tíma til að leggja mat á það hvort fyrirhugaðar breytingar hjá Íslandsbanka væru nægjanlega umfangsmiklar.