Sjáðu öll mörkin og þegar Arnar Gunnlaugsson missir sig á hliðarlínunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2023 09:01 Arnar Gunnlaugsson missti sig alveg á hliðarlínunni í stöðunni 1-1. S2 Sport Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr báðum leikjunum hér inn á Vísi.
Víkingar juku forskot sitt á toppnum með endurkomusigri á FH í Kaplakrika og nágrannarnir Fram og Fylkir gerðu jafntefli í Úlfarsárdalnum. Víkingur vann 3-1 sigur á FH eftir að hafa lent 1-0 undir í upphafi leiksins. Eftir leikinn eru Víkingar með 47 stig og sex stigum meira en Valsmenn sem eru í öðru sæti deildarinnar. Kjartan Henry Finnbogason kom FH yfir á 3. mínútu en Birnir Snær Ingason snéri við leiknum með tveimur mörkum á þrettán mínútna kafla, fyrst með skoti fyrir utan teig á 29. mínútu og svo með hnitmiðuðu táarskoti á 42. mínútu. Í millitíðinni fékk Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, að líta rauða spjaldið fyrir að segja eitthvað við Egil Guðvarð Guðlaugsson aðstoðardómara. Varamaðurinn Erlingur Agnarsson innsiglaði sigurinn á 86. mínútu eftir stoðsendingu frá öðrum varamanni, Helga Guðjónssyni. Fram og Fylkir gerðu 1-1 jafntefli. Aron Jóhannsson kom Fram í 1-0 á 3. mínútu en Pétur Bjarnason jafnaði metin á 74. mínútu. Framarar eru því áfram í fallsæti en þetta var fyrsti leikurinn eftir að Ragnar Sigurðsson tók við liðinu af Jóni Sveinssyni. Það má sjá mörkin úr leikjunum hér fyrir neðan. Klippa: Mörkin úr leik FH og Víkings Klippa: Mörkin úr leik Fram og Fylkis
Besta deild karla Víkingur Reykjavík FH Fram Fylkir Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira