Thelma Christel frá Lex til BBA//Fjeldco Árni Sæberg skrifar 5. september 2023 21:35 Thelma Christel Kristjánsdóttir er gengin til liðs við BBA//Fjeldco, sem er til húsa í tuninum á Höfðatorgi auk þess að vera með skrifstofur í Lundunúm og Frakklandi. BBA//Fjeldco/Vísir/Vilhelm Thelma Christel Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem lögmaður hjá lögmannsstofunni BBA//Fjeldco.
Í tilkynningu um vistaskiptin segir að ráðning Thelmu Christelar muni efla tækni- og hugverka- og persónuverndarteymi BBA//Fjeldco með þekkingu hennar og reynslu af evrópskri og bandarískri persónuvernd, gervigreind og hugverkarétti, en eftirspurn eftir slíkri þjónustu fari sífellt vaxandi með aukinni notkun gervigreindar og öflun persónuupplýsinga í daglegu lífi. Thelma Christel hafi áður starfað í tækni-, hugverka- og persónuverndarteymi Lex lögmannsstofu þar sem hún hafi meðal annars veitt ráðgjöf á sviði persónuverndar og tækniréttar til innlendra og alþjóðlegra fyrirtækja. Thelma Christel sé menntaður lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands og lauk nýverið LL.M gráðu í tækni-og hugverkarétti frá UC Berkeley. Í námi sínu í UC Berkeley hafi Thelma Christel einbeitt sér að rannsóknum á sviði gervigreindar, tölvuleikja, netöryggis, hugverkaréttinda og persónuverndar. Thelma Christel sinni stundakennslu við lagadeild Háskóla Íslands og muni einnig sinna stundakennslu við Háskólann á Bifröst á næsta ári.Hún sitji einnig í ráðgjafarnefnd Bonterms, nýsköpunarfyrirtækis í San Francisco, sem vinni að því að útbúa staðlaða samningsskilmála fyrir fyrirtæki. BBA//Fjeldco sé ein stærsta lögmannsstofa landsins á sviði fjármála– og fyrirtækjalögfræði. Á stofunni starfi yfir þrjátíu lögfræðingar, sérhæfðir í fyrirtækjalögfræði, með málflutningsréttindi á Íslandi, í Englandi, Frakklandi og New York.
Vistaskipti Lögmennska Mest lesið Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sjá meira