Mickelson, sem hefur sex sinnum fagnað sigri á risamóti í golfi, segir að á undanförnum árum hafi veðmálahegðun hans þróast úr því að vera hófleg yfir í það að vera fíkn. Í síðasta mánuði greindi atvinnufjárhættuspilarinn Billy Walters frá því að Mickelson hafi veðjað meira en einum milljarði bandaríkjadollara á hinar ýmsu íþróttir síðustu þrjá áratugi, en það samsvarar rúmlega 130 milljörðum íslenskra króna.
Mickelson segir að fíknin hafi haft gríðarlega slæm áhrif á samband hans við fjölskyldu og vini, en að þrátt fyrir að hann hafi veðjað háum fjárhæðum í gegnum tíðina hafi hann aldrei sett sig eða fjölskylduna í fjárhagsvandræði.
„Það var eins og ég væri lokaður inni í skýli og vissi ekki af storminum sem geysaði úti,“ ritaði Mickelson á samfélagsmiðla sína.
„Peningar voru aldrei vandamálið þar sem fjárhagsstaða okkar hefur alltaf verið tryggð, en ég var svo utan við mig að ég gat ekki varið til staðar fyrir þau sem ég elska og það olli miklum skaða. Þessi fjarvera hefur haft gríðarlega slæm áhrif.“
„Eitthvað sem ég heyrði oft þegar ég glímdi við fíknina var: „Þú ert hérna en þú ert ekki með okkur.“ Það hafði áhrif á þá sem mér þykir vænt um á vegu sem ég vissi ekki af eða skildi ekki.“
Most of you will enjoy this football season with moderation while having lots of fun and entertainment. The fantasy leagues will provide banter amongst friends and money won or lost betting won t affect you. I wont be betting this year because I crossed the line of moderation and
— Phil Mickelson (@PhilMickelson) September 18, 2023
Þá þakkar Mickelson konu sinni, Amy, fyrir sýndan stuðning í gegnum ferlið.
„Hún hefur elskað mig og stutt í gegnum mína erfiðustu og myrkustu tíma. Ég hefði ekki komist í gegnum þetta án hennar,“ ritaði Mickelson.
„Eftir mörg ár af því að sækja mér hjálp, sleppa því að stunda fjárhættuspil og að vinna í að jafna mig á fíkninni get ég nú setið kyrr, verið til staðar í núinu og lifað hvern dag með innri frið og ró.“