Atlantic vann hnífalotuna og kaus að hefja leik í vörn á Vertigo. FH tók fyrstu lotu leiksins en Atlantic fylgdi þar fast á eftir og tók þrjár í röð.
Bjarni, leikmaður Atlantic, leiddi fellutöfluna hjá Atlantic en hann var með níu fellur eftir aðeins sex lotur. Atlantic byrjaði fyrri hálfleikinn svo sannarlega betur, en staðan var 5-2 eftir sjö lotur.
FH sneri þó blaðinu heldur betur við en Wzrd og mozar7, leikmenn FH, leiddu fellingatöfluna í ótrúlegri endurkomu liðsins. FH sigraði sex lotur í röð og kom stöðunni í 5-8. Atlantic náði þó að klóra til baka í lok fyrri hálfleiks og tók tvær lotur.
Staðan í hálfleik: 7-8
Í seinni hálfleik setti FH í fluggír og tók sjö lotur í röð. Staðan þá orðin 7-15 og FH komið á úrslitastig. Trekk í trekk reyndu Atlantic-menn að klekkja á vörn FH-inga en glufurnar voru fáar og smáar. Atlantic náði aðeins að taka tvær lotur áður en FH fann sigurlotuna og sigraði viðureignina.
Lokatölur: 16-9
FH fullkomnaði byrjun sína á tímabilinu með óvæntum sigri gegn Atlantic, sínum öðrum á tímabilinu. Atlantic, sem sigraði Stórmeistaramót síðasta tímabils, situr þó á botni deildarinnar, án stiga í tveimur leikjum og brekkan strax orðin afar brött fyrir þá í upphafi tímabils.
