Tíu stig dregin af Everton Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. nóvember 2023 12:37 Everton vann Crystal Palace, 0-1, í síðasta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni. getty/Clive Rose Tíu stig hafa verið dregin af Everton í ensku úrvalsdeildinni fyrir brot á reglum ensku úrvalsdeildarinnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri.
Everton tapaði 124,5 milljónum punda á þriggja ára tímabili en félög mega ekki tapa meira en 105 milljónum punda. Farið var fram á að tólf stig yrðu dregin af Everton en úrvalsdeildin kom sér ekki saman um þá refsingu. Óháð nefnd komst því að þeirri niðurstöðu að dæma tíu stig af Everton. Everton færist með þessu niður um fimm sæti, úr því fjórtánda niður í það nítjánda. Liðið er nú með fjögur stig og er fimm stigum frá öruggu sæti. Everton tekur á móti Manchester United á sunnudaginn. Þetta er í þriðja sinn sem stig eru dregin af liði í ensku úrvalsdeildinni. Þrjú stig voru dregin af Middlesbrough fyrir að mæta ekki til leiks gegn Blackburn Rovers tímabilið 1996-97 og níu stig voru dregin af Portsmouth eftir að félagið fór í greiðslustöðvun 2009-10. Í yfirlýsingu segist Everton vera í áfalli og hafa orðið fyrir vonbrigðum með úrskurðinn og ætlar að áfrýja. Club Statement. https://t.co/RpHdLJRurc pic.twitter.com/hyFfl9vWxO— Everton (@Everton) November 17, 2023 Jafnframt segir í yfirlýsingunni að Everton ætli að fylgjast náist með ákvörðunum um sambærileg mál annarra félaga. Nokkuð ljóst er að Everton vísar þar til meintra brota Manchester City sem telja 115.
Enski boltinn Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Frank Mill er látinn Fótbolti Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Fleiri fréttir Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sjá meira