Týndi GPS-mæli þegar hann kastaði treyjunni sinni upp í stúku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. nóvember 2023 14:30 Joël Veltman var nálægt því að glata GPS-mælinum á treyju sinni fyrir fullt og allt. getty/Steve Bardens Joël Veltman, leikmaður Brighton, þurfti að finna stuðningsmanninn sem fékk treyjuna hans eftir leikinn gegn Nottingham Forest í flýti.
Brighton vann leikinn, 2-3, og Mávarnir fögnuðu stigunum þremur vel og innilega með stuðningsmönnum sínum enda fyrsti sigur þeirra í sjö leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Veltman kastaði meðal annars treyju sinni til heppins stuðningsmanns upp í stúku. Hann áttaði sig skömmu síðar á því að GPS-mælirinn sem allir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og víðar spila með hafði fylgt með treyjunni. Veltman þurfti því að snúa aftur út á völl og gera dauðaleit að treyjunni til að endurheimta GPS-mælinn. Stuðningsmaðurinn var farinn af vellinum en mælirinn skilaði sér til Veltmans á endanum. Brighton er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 22 stig eftir þrettán leiki. Næsti leikur liðsins er gegn AEK Aþenu í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Á sunnudaginn sækir Brighton svo Chelsea heim í ensku úrvalsdeildinni. Veltman, sem er 31 árs varnarmaður, kom til Brighton frá Ajax fyrir þremur árum. Hann hefur leikið 28 landsleiki fyrir Holland og skorað tvö mörk.
Enski boltinn Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Enski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Dagskráin í dag: Verður markamet efstu deildar karla bætt? Sport „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Sjá meira