Kvöldið áður fékk Unnur símtal frá leikstjóranum, Bergi Þór Ingólfssyni.
„Hann bað mig að hoppa inn með svo að segja engum fyrirvara vegna veikinda aðalleikkonunnar, Ásthildar Úu. Fyrsta svarið mitt var skiljanlega nei og bætti við að svona lagað væri ekki gerlegt með svo stuttum fyrirvara.

Einhvern veginn náði hann samt að sannfæra mig um að ég gæti vel gert þetta og ég myndi fá in-ear í eyrað. Þá er línunum mínum hvíslað í eyrað á sama tíma og ég fer með þær. Þessi tækni er nánast aldrei notuð lengur í leikhúsi.
Mesta heilaleikfimi sem sem ég hef nokkurn tímann þurft að gera
„Ég vissi alveg að ég gæti leikið, sungið og dansað en var verulega stressuð að ná textanum, sérstaklega í lögunum sem ég kann ekki. Eins fannst mér virkilega óþægileg pæling að leika með rödd í eyranu sem ég hef aldrei gert áður.“

Unnur var þó ekki alveg ókunn sýningunni því hún samdi dansana fyrir verkið. Sjálf segist hún þó hafa verið löngu búna að gleyma þeim enda farin út úr verkefninu. Að morgni sýningardags fékk hún nokkrar æfingar og náði að rifja dansana upp.
„Við tókum nokkrar leiksenur og ég prófaði að vera með in-ear. Þetta var einhver mesta heilaleikfimi sem ég hef nokkurn tímann þurft að gera. Það er varla hægt að ímynda sér að hlusta á leikstjórann tala í eyrað mitt, byrja setninguna á meðan hann var að klára setninguna, hlusta og tala á sama tíma sem og að leika á sviðinu svo allt liti eðlilega út.
Mér fannst eins og heilanum væri skipt í þrennt. Í dans og söngatriðunum var það síðan að syngja og dansa á sama tíma og hlusta á leikstjórann í eyranu. Ég mun aldrei gleyma þessu.“
Enginn tími fyrir stress
Spurð á hvaða skala stressið hafi verið þegar tjaldið var svo dregið frá segir Unnur það undarlegasta.

„Það var í raun ótrúlegt að ég fann ekki fyrir stressi meðan á þessu stóð því það hreinlega gafst ekki tími til þess. Það tók eitthvað annað yfir.
Ég vissi að ég yrði að klára þetta og hugsaði með mér að það væri nú eins gott að hafa gaman að þessu því annars er þetta tilgangslaust.
Sjálfri finnst mér ekkert skemmtilegra en að leika, syngja og dansa á sviði svo ég vatt mér beint inn í þá orku. Næst vona ég samt að ég fái að æfa hlutverkið frá byrjun og njóta mín í botn á sviðinu.“
Framundan eru fjölbreytt verkefni en Unnur er til að mynda listrænn hönnuður yfir öllum atriðum Idol stjörnuleitar.
„Já ég þjálfa keppendur í sviðsframkomu, ég er líka að skrifa nokkur leikrit og söngleiki, vinna heimildamynd og nú óska ég þess að verða ráðin í næsta stóra söngleik sem leikkona, söngkona og dansari,“ segir Unnur í léttum tón að lokum.