Ballið búið hjá þríeykinu vinsæla Árni Sæberg skrifar 29. nóvember 2023 22:26 Richard Hammond, Jeremy Clarkson og James May í Kraká í Póllandi. Þeir njóta mikilla vinsælda um allan heim. Vito Corleone/Getty Images Þeir Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May eru sagðir hafa tekið upp síðasta þátt sinn af The Grand Tour, bílaþáttaröð streymisveitunnar Amazon Prime. Síðustu rúma tvo áratugi hafa þeir verið meðal vinsælustu sjónvarpsmanna heimsins.
Þríeykið hefur lokið tökum á þætti um ferð sína til Simbabve, sem gefinn verður út á næsta ári. The Independent hefur eftir heimildarmönnum sínum að það verði síðasti þátturinn í þáttaröðinni, allavega undir stjórn þeirra þriggja. Þættirnir hófu göngu sína árið 2016 og hafa notið nokkuð mikilla vinsælda. Fyrst um sinn komu reglulega út þættir en undanfarin ár hafa færri en lengri þættir verið framleiddir á ári. Þeir Clarkson, Hammond og May hófu þó gjöfult samstarf sitt fyrir margt löngu. Þeir stýrðu saman bílaþættinum Top Gear á breska ríkissjónvarpinu á árunum 2002 til 2015. Top Gear naut þvílíkra vinsælda á sínum tíma að Clarkson var um árabil launahæsti starfsmaður breska ríkissjónvarpsins. Hann var rekinn árið 2015 eftir að starfsmaður í framleiðsluliðinu greindi frá því að Clarkson hefði kýlt hann eftir rifrildi um veitingar á tökustað. Þeir Hammond og May ákváðu að hætta í kjölfarið og vinsældir Top Gear döluðu mikið. Fyrr í ár var tilkynnt um að framleiðslu þeirra væri lokið. Aðdáendur þríeykisins munu vafalítið sjá á eftir því en í febrúar kemur út þáttur um ferðalag þess um Máritaníu og seinna á næsta ári kemur síðasti þátturinn út.
Bílar Hollywood Bretland Amazon Mest lesið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Löggan sem gerðist leikari á miðjum aldri Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Tónlist Matti Matt nú meistari Lífið Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira