Laufey hefur átt mjög gott ár en Bewitched, nýjasta plata hennar, sló met hjá Spotify þegar hún var gefin út.
Fyrsta sólarhringinn var plötunni streymt 5,7 milljón sinnum, en það er langmesta spilun sem djassplata hefur fengið á tónlistarveitunni á fyrsta sólarhring eftir útgáfu.
Sjá einnig: Laufey toppar Lady Gaga
Þá stefnir hún á umfangsmikið tónleikahald víða um heim á næsta ári.
Laufey spilaði nýverið í þættinum hjá Jimmy Kimmel.
Eins og áður segir er Laufey komin með yfir tvær milljónir fylgjenda á Instagram. Björk er með 1,97 milljónir. Vinsælasti Íslendingurinn á Instagram er Hafþór Júlíus Björnsson, með 4,2 milljónir fylgjenda.