Slæm úrslit fyrir Ísland í fyrsta leik dagsins á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2024 16:12 Portúgalir fagna sigrinum á Norðmönnum. getty/Marcus Brandt Portúgal vann Noreg, 32-37, í fyrsta leiknum í milliriðli 2 á EM í handbolta í dag. Úrslitin voru slæm fyrir íslenska liðið í baráttunni um að komast í umspil fyrir Ólympíuleikana í sumar.
Norðmenn voru með frumkvæðið framan af leik og komust nokkrum sinnum þremur mörkum yfir. Portúgal breytti hins vegar stöðunni úr 13-11 í 13-17 með sex mörkum í röð undir lok fyrri hálfleiks. Í hálfleik voru Portúgalir svo þremur mörkum yfir, 15-18. Í seinni hálfleik var Portúgal alltaf fetinu framar og Noregi tókst aldrei að jafna þrátt fyrir nokkrar tilraunir. Alexander Blonz minnkaði muninn í eitt mark, 31-32, þegar hann skoraði úr vítakasti en Portúgalir skoruðu fimm af síðustu sex mörkum leiksins og unnu hann, 32-37. Þeir fengu þar með sín fyrstu stig í milliriðli 2. Úrslitin voru óhagstæð fyrir Ísland en íslenska liðið er aðallega í baráttu við Portúgal, Holland og Austurríki um sæti í forkeppni Ólympíuleikanna. Allar líkur eru á að Íslendingar þurfi að lenda fyrir ofan tvö af þessum þremur liðum til að ná markmiði sínu um að spila um Ólympíusæti. Pedro Portela skoraði átta mörk fyrir Portúgal í leiknum gegn Noregi og Martim Costa sjö. Blonz var markahæstur Norðmanna með sjö mörk. Kristian Bjørnsen skoraði sex en Sander Sagosen hefur oft leikið betur og var aðeins með tvö mörk.
EM 2024 í handbolta Mest lesið Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Svíar vinna Ólympíubronsið 2010: „Fáránlegt að þetta hafi tekið svona langan tíma“ Sport Younghoe sparkað burt Sport Þrjú rauð spjöld á Sauðárkróki: Tindastóll fer á Laugardalsvöll Fótbolti Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Handbolti Kristian skoraði og lagði upp í stórsigri gegn fyrrum félögum Fótbolti Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Valur sótti nauman sigur norður Handbolti Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals Handbolti Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Handbolti Fleiri fréttir Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda Sjá meira