Þarf að bæta við sig ferðatöskum til að flytja öll fötin heim Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 19. janúar 2024 11:41 Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur fest kaup á einbýlishúsi í Borgarnesi. Áður en hann flytur þangað inn nýtur hann góða lífsins á Flórída. Vísir/Vilhelm Söngfuglar sötra kokteila á Flórída, aðrir njóta sólarinnar á Tenerife á meðan náttúruvársérfræðingur gleymir sér við mínígolf. Já, það er komið víða við í Frægir á ferð þessa vikuna.
Friðrik Ómar söngvari stakk af frá Íslandi fyrir áramótin og nýtur lífsins í útlandinu áður en við taka flutningar í nýja húsið í Borgarnesi. Eftir heimsókn til Færeyja um áramótin þar sem Friðrik og Jógvan sungu meðal annars saman á tónleikum stakk Friðrik af í sólina til Miami í Flórída. Þar er María Björk Sverrisdóttir hjá Söngvaborg gestgjafinn og óhætt að segja að kokteilarnir hafi verið blandaðir miðað við frásögn Friðriks á Instagram. Það stefnir í ansi mikla yfirvigt hjá Friðriki sem var að kaupa tvær ferðatöskur í viðbót eftir ansi mikil fatakaup vestanhafs. Hann fagnar því aftur á móti að vera í fatastærð extra small í Ameríkunni. View this post on Instagram A post shared by Maria Björk (@mariabjorksverris) Fleiri söngfuglar kunna að meta sólina því Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Eurovision-drottning hefur notið lífsins á Tenerife í janúar ásamt fjölskyldu sinni. Þar hafa Egill Einarsson einkaþjálfari og Ásgeir Kolbeinsson athafnamaður líka gert vel við sig í mat og drykk ásamt konunum sínum Gurrý Jóns og Heru Gísla. Hera hefur verið í vandræðum með hárið sitt í hitanum og rakanum á Tene þó það sjáist ekki á þessari mynd. View this post on Instagram A post shared by Hera Gísladóttir (@heragisladottir) En það er líka hægt að njóta góðs matar á Íslandi. Það gerðu þrenn vinahjón á Oto restaurant á Hverfisgötu á dögunum. Edda Hermannsdóttir hjá Íslandsbanka og Ríkharður Daðason fjárfestir og fyrrverandi boltasparkari, reyndar ekki síður skallari í tilfelli Rikka, snæddu með Friðriku Hjördísi Geirsdóttur, Rikku kokki, og Kára Hallgrímssyni bankamanni. Helgi Björgvinsson yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Marta Jónsdóttir sendiráðunautur fullkomnuðu þrennuna við borðið. Nikolaj Coster Waldau, einn frægasti leikari Dana, hefur verið á Íslandi og þá væntanlega í tengslum við víkingaseríu sem Baltasar Kormákur vinnur að þessa dagana. Sá danski skóflaði í sig mat á Kastrup, sem býður einmitt upp á danska rétti, og var víst yfir sig hrifinn og lét kokkinn vita af því. Sumir láta kaffið duga og það gerðu Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi og Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúi og ritstjóri Viljans. Þau sátu saman á Kaffi Vest á mánudaginn og virtust vera með eitthvað á prjónunum. Álagið hefur verið mikið á náttúruvársérfræðingum Veðurstofu Íslands undanfarnar vikur, mánuði og ár. Kristín Jónsdóttir er ein þeirra skærasta stjarna og þótti sýna glæsilega takta með golfkylfuna í Mínígarðinum í gær. Þangað voru fjölmargir mættir til að fylgjast með strákunum okkar glíma við Þýskaland á EM í handbolta. Fregnir bárust af því í gær að viðskiptavinur í Góða hirðinum hefði fundið tölvuleik fyrir einhverju síðan sem talið er að geti verið einhverra milljóna króna virði. Hvort sá fundur hafi hvatt Margréti Friðriksdóttur á Fréttinni til að skella sér í heimsókn er ómögulegt að segja. Hún sást alla vega brosandi út að eyrum með gufuvél og steikarpott. Um að gera að endurnýta en Margrét hefur haft umhverfismál nokkuð til umfjöllunar á vef sínum. Píratar kunna að halda partý þó dæmi sanni að þau geti endað á ómögulegum nótum og jafnvel með handtöku á klósetti. Allt gekk þó vel fyrir sig í afmæli Kristínar Ólafsdóttur framkvæmdastjóra sem haldið var á Irishman. Píratar virðast sjúkir í karókí og var Björn Leví Gunnarsson þingmaður á meðal þeirra sem tóku lagið. Þingmennirnir Arndís Anna Kristínardóttir og Halldóra Mogensen voru í stuði ásamt mökum sínum. Og Dagur B. Eggertsson kann að fagna endalokum sem borgarstjóri. Haldið var hóf í Höfða og fram undan er risaveisla í Borgarleikhúsinu. Þá borgar Dagur þó úr eigin vasa og segist vera búinn að safna fyrir henni lengi. Tímamótum ber að fagna og sást Dagur rifja upp árin sín í Háskóla Íslands með bjórsötri í Stúdentakjallaranum, sem er reyndar allt annar og betri en sá við Hringbrautina þegar Dagur nam læknisfræði við skólann. Leikhúsin eru á fullu og sást Jakob Frímann Magnússon þingmaður og poppari ganga rösklega í Borgarleikhúsið í gegnum Kringluna til að vera viðstaddur frumsýningu Lunu. Ilmur Kristjánsdóttir leikkona var á meðal fjölmargra leikara sem skelltu sér á frummarann. Þá eru ótýndir allir þeir sem hafa fylgt eftir karlalandsliðinu í handbolta í München og nú Köln. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingmaður Viðreisnar og Kristján Arason handboltakempa eru þeirra á meðal. Ráðherrarnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Benediktsson fylgdust með í München ásamt fótboltastjörnunni Glódísi Perlu Viggósdóttir og Kristófer Eggertssyni, eiginmannsefni hennar. Íslendingar fjölmenntu á leiki Íslands í München.Vísir/Vilhelm Sprelligosarnir Auddi Blö og Steindi Jr. stukku út á leikinn gegn Ungverjum en reyndust ekki þau lukkutröll sem landsliðið þurfti á að halda. Ungverjar gerðu gúllassúpu úr íslensku strákunum sem sáu ekki til sólar. Á Keflavíkurflugvelli beið svo bíll þeirra félaga á kafi í snjó. Skíðatímabilið er hafið fyrir alvöru og Sigurlaug Sverrisdóttir, Laulau, lætur ekki segja sér það tvisvar. Hótelstjóri Ion-hótelsins er mætt í alpana ásamt Hrefnu Bachmann gleðigjafa og nú skal skíðað. Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona og ræðismaður Spánar á Íslandi hefur líka verið á skíðum en skellti sér svo til Kanaríeyja og fundaði með viðskiptaráði eyjanna. Rúrik Gíslason fyrirsæta og áhrifavaldur er kominn í alpana þar sem fram undan virðast vera auglýsingatökur fyrir skíðabúnað. Mögulega gaf Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður honum einhver ráð fyrir brekkurnar eftir kvöldstund þeirra á OX í vikunni. Að lokinni máltíð var smellt í epíska myndatöku.
Frægir á ferð Íslendingar erlendis Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Sjá meira