Hagnaður Össurar nam um átta milljörðum króna á síðasta ári Atli Ísleifsson skrifar 30. janúar 2024 07:44 Sveinn Sölvason er forstjóri Össurar. Vísir/Vilhelm Tekjur Össurar á fjórða ársfjórðungi 2023 námu 210 milljónum Bandaríkjadala, eða 29,2 milljörðum íslenskra króna, sem samsvarar níu prósenta innri vexti. Tekjur á nýliðnu áru námu því 786 milljónum Bandaríkjadala, eða 109,1 milljörðum íslenskra króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem farið er yfir fjórða ársfjórðung á árinu 2023. Þar segir frá því að á fjórða ársfjórðungi hafi innri vöxtur í sölu á stoðtækjum verið níu prósent, eitt prósent á spelkum og stuðningsvörum, og 12 prósent í þjónustu við sjúklinga. Þá hafi innri vöxtur í sölu á stoðtækjum verið 13 prósent á árinu, þrjú prósent á spelkum og stuðningsvörum, og átta prósent í þjónustu við sjúklinga. „Hagnaður á fjórða ársfjórðungi jókst um 49% frá fyrra ári og nam 19 milljónum Bandaríkjadala (2,6 milljörðum íslenskra króna) eða 9% af veltu. Hagnaður á árinu jókst um 36% og nam 59 milljónum Bandaríkjadala (8,2 milljörðum íslenskra króna) eða 7% af veltu. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 37 milljónum Bandaríkjadala (5,2 milljörðum íslenskra króna) eða 18% af veltu á fjórða ársfjórðungi. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) á árinu nam 18% af veltu. Þann 16. janúar 2024, festi Össur kaup á þýska stoðtækifyrirtækinu FIOR & GENTZ. Þann 18. janúar 2024, gaf Medicare (sjúkratryggingar ríkisins í Bandaríkjunum) út tillögu sem felur í sér kerfisbreytingar sem munu koma til með að auka verulega aðgengi að hágæða stoðtækjum. Endanleg útfærsla og tímasetningar liggja enn ekki fyrir. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 er 5-8% innri vöxtur og 19-20% EBITDA framlegð að teknu tillit til einskiptisliða,“ segir í tilkynningunni.
Össur Kauphöllin Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Jón Ólafur nýr formaður SA Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent