Hagkvæmara að leigja en eiga á höfuðborgarsvæðinu Lovísa Arnardóttir skrifar 15. febrúar 2024 08:38 Meðalleiga á 80 fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað með nokkuð stöðugum hætti á síðustu 13 árum, eða úr 109 þúsund krónum í 275 þúsund krónur á tímabilinu. Vísir/Vilhelm Töluvert hagkvæmara er að leigja heldur en eiga á höfuðborgarsvæðinu þessa stundina, þar sem mánaðarlegar greiðslur af óverðtryggðum lánum eru allt að 40 prósentum umfram leiguverði.
Þar segir að frá 2011 til 2019 hafi greiðslubyrði lána verið tiltölulega stöðug og 20 til 40 prósentum undir leiguverði á sambærilegri eign. Í kjölfar vaxtahækkana árið 2022 hefur greiðslubyrði bæði verðtryggðra og óverðtryggðra lána aukist umfram leiguverðshækkanir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS. Samkvæmt útreikningum HMS getur íbúðareigandi á höfuðborgarsvæðinu vænst þess að borga 40 prósentum meira í fyrstu mánaðarlegu afborgun af íbúðaláni en nemur leiguverði á sambærilegri íbúð, taki hann óverðtryggt 30 ára lán fyrir 70 prósent af kaupverði. Þá er sömuleiðis greiðslubyrðin á verðtryggðum lánum einnig sögulega há, ef miðað er við meðalleiguverð. Þetta kemur fram þegar hlutfall greiðslubyrðar af leiguverði er skoðað á höfuðborgarsvæðinu. Bera saman mánaðarleg útgjöld eftir búsetuformi Í tilkynningu HMS segir að hlutfallið gefi vísbendingu um hversu hagkvæmt það er að leigja gegn því að eiga hverju sinni, þar sem það ber saman mánaðarleg útgjöld eftir búsetuformum. Til skemmri tíma geti miklu munað á greiðslubyrði lána og leiguverðs, en til lengri tíma eigi báðar stærðirnar að fylgjast að. Þó er tekið fram í tilkynningu HMS að samanburðurinn sé ófullkominn þar sem eignamyndun á sér stað í afborgunum á íbúðalánum. Íbúðareigendur þurfi að greiða ýmis föst gjöld eins og fasteignagjöld og tryggingar en að á sama tíma megi búast við því að þróun leiguverðs haldist í hendur við þróun greiðslubyrðar af lánum til langs tíma, þar sem leigusalar taki mið af lánaafborgunum þegar þeir ákveða leiguverð. Myndin sýnir áætlaða leigu á 80 fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/HMS Myndin hér að ofan sýnir áætlaða leigu á 80 fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt henni er áætlað að fólk greiði um 275 þúsund fyrir leiguna. Leiguverðið var ákvarðað út frá meðalleiguverði á hvern fermetra í janúar 2011 og þróun leigunnar var síðan mæld í samræmi við vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Sömuleiðis sýnir myndin greiðslubyrði á jafnstórri íbúð við fyrstu afborgun, ef miðað er við meðalkaupverð á hvern fermetra í janúar 2011 og þróun í samræmi við vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir að íbúðareigandi taki húsnæðislán með jöfnum afborgunum í banka til 30-40 ára með 70 prósenta veðsetningarhlutfalli. Gert er ráð fyrir að greiðslan sé þá um 370 þúsund. Meðalleiga hækkað með stöðugum hætti Líkt og myndin sýnir hefur meðalleiga á 80 fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu hækkað með nokkuð stöðugum hætti á síðustu 13 árum, eða úr 109 þúsund krónum í 275 þúsund krónur á tímabilinu. Á sama tíma hefur mánaðarleg greiðslubyrði á verðtryggðu láni á slíkri íbúð aukist úr 70 til 80 þúsund krónum á mánuði og upp í 190 til 210 þúsund krónur á mánuði. Greiðslubyrði sams konar óverðtryggðs láns hefur hins vegar hækkað úr 75 til 85 þúsund krónum á mánuði og upp í 360 til 390 þúsund krónur á mánuði. Því er greiðslubyrði óverðtryggðs láns þessa stundina rúmlega 100 þúsund krónum meiri en leiga sambærilegrar íbúðar í hverjum mánuði. Í tilkynningu HMS segir að á árunum 2011 til 2019 hafi hlutfall leigu og greiðslubyrðar af húsnæðislánum tiltölulega stöðugt á höfuðborgarsvæðinu, en líkt og myndin að neðan sýnir var fyrsta afborgun af óverðtryggðum húsnæðislánum um 80 prósent af leiguverði og fyrsta afborgun af verðtryggðum húsnæðislánum um 60 prósent af leiguverði á því tímabili. Samhliða vaxtalækkunum sem hófust árið 2019 varð svo hlutfallslega ódýrara að taka óverðtryggt lán, en þá nam greiðslubyrðin af því 60 til 70 prósentum af leiguverði. Á árunum 2011-2019 var hlutfall leigu og greiðslubyrðar af húsnæðislánum tiltölulega stöðugt á höfuðborgarsvæðinu.Mynd/HMS Samhliða vaxtahækkunum sem hófust árið 2022 hafa bæði verðtryggð og óverðtryggð lán orðið dýrari. Á síðustu sex mánuðum hefur greiðslubyrði óverðtryggðra lána verið 130 til 140 prósent af meðalleiguverði á höfuðborgarsvæðinu, en greiðslubyrði verðtryggðra lána er nú 70 til 80 prósent af leiguverði. Þetta er hæsta hlutfall greiðslubyrðar bæði verðtryggðra og óverðtryggðra lána af leigu frá upphafi árs 2011.
Húsnæðismál Reykjavík Efnahagsmál Verðlag Leigumarkaður Fasteignamarkaður Tengdar fréttir Mest borgað fyrir leigu í austurhluta Kópavogs Meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu var hæst í póstnúmeri 203 á síðasta ári, en í því sama póstnúmeri voru íbúðir til leigu jafnframt stærri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðið á hvern fermetra var hins vegar hæst í Vesturbænum. 7. febrúar 2024 10:41 Nauðsynlegt að hækka lán og breyta skilyrðum um námsframvindu Landssamtök íslenskra stúdenta, LÍS, telja áríðandi að lögum um Menntasjóð námsmanna verði breytt til að tryggja skilvirkni og betra aðgengi nemenda að lánum og styrkjum. Samtökin fóru á fund allsherjar- og menntamálanefndar fyrir hádegi í dag. 6. febrúar 2024 13:30 Verkfallsaðgerðir breiðfylkingarinnar yrðu samræmdar Forysta stéttarfélaga innan breiðfylkingarinnar segir aðgerðir félaganna verða samræmdar komi til þess að boðað verði til verkfalla. Ljóst sé að fyrirvari Samtaka atvinnulífsins um sjálfstæði Seðlabankans standist ekki og vonandi verði hægt að ganga til samninga á ný sem fyrst. 14. febrúar 2024 19:21 Starfsskilyrði versna og skýr merki um samdrátt Gjaldþrotum starfandi fyrirtækja fjölgaði verulega á milli ára og í byggingariðnaði voru þau þrefalt fleiri í fyrra en árið á undan. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir starfsskilyrði í greininni hafa versnað mikið og skýr merki um samdrátt í íbúðauppbyggingu. 14. febrúar 2024 11:47 Seðlabankastjóri staðfesti sjálfstæðan samningsrétt á vinnumarkaði Formaður VR segir seðlabankastjóra hafa staðfest að krafa breiðfylkingarinnar um forsenduákvæði varðandi þróun vaxta skerði ekki sjálfstæði Seðlabankans, enda hafi slík ákvæði verið í samningum áður. Samninganefnd VR fékk umboð trúnaðarráðs í gærkvöldi til að boða til verkfallsaðgerða. 14. febrúar 2024 11:46 Mest lesið Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Búið að greiða laun og barnabætur Viðskipti innlent Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Isavia gefur strandaglópum engin grið Ásgeir og Darri til Landslaga Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Búið að greiða laun og barnabætur Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Snaps teygir anga sína út á Hlemm „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Hrun í makríl og kolmunna Fall Play áfall en að einhverju leyti fyrirséð Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Eðlilegt ef farið verður yfir eftirlit með flugfélögum Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað Þjóðarskútan sé „vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó“ Gjaldþrotaskiptabeiðni Play tekin fyrir í héraðsdómi Atvinnuleysi 5,3 prósent í ágúst Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Leik lokið hjá Play „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Sjá meira
Mest borgað fyrir leigu í austurhluta Kópavogs Meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu var hæst í póstnúmeri 203 á síðasta ári, en í því sama póstnúmeri voru íbúðir til leigu jafnframt stærri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðið á hvern fermetra var hins vegar hæst í Vesturbænum. 7. febrúar 2024 10:41
Nauðsynlegt að hækka lán og breyta skilyrðum um námsframvindu Landssamtök íslenskra stúdenta, LÍS, telja áríðandi að lögum um Menntasjóð námsmanna verði breytt til að tryggja skilvirkni og betra aðgengi nemenda að lánum og styrkjum. Samtökin fóru á fund allsherjar- og menntamálanefndar fyrir hádegi í dag. 6. febrúar 2024 13:30
Verkfallsaðgerðir breiðfylkingarinnar yrðu samræmdar Forysta stéttarfélaga innan breiðfylkingarinnar segir aðgerðir félaganna verða samræmdar komi til þess að boðað verði til verkfalla. Ljóst sé að fyrirvari Samtaka atvinnulífsins um sjálfstæði Seðlabankans standist ekki og vonandi verði hægt að ganga til samninga á ný sem fyrst. 14. febrúar 2024 19:21
Starfsskilyrði versna og skýr merki um samdrátt Gjaldþrotum starfandi fyrirtækja fjölgaði verulega á milli ára og í byggingariðnaði voru þau þrefalt fleiri í fyrra en árið á undan. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir starfsskilyrði í greininni hafa versnað mikið og skýr merki um samdrátt í íbúðauppbyggingu. 14. febrúar 2024 11:47
Seðlabankastjóri staðfesti sjálfstæðan samningsrétt á vinnumarkaði Formaður VR segir seðlabankastjóra hafa staðfest að krafa breiðfylkingarinnar um forsenduákvæði varðandi þróun vaxta skerði ekki sjálfstæði Seðlabankans, enda hafi slík ákvæði verið í samningum áður. Samninganefnd VR fékk umboð trúnaðarráðs í gærkvöldi til að boða til verkfallsaðgerða. 14. febrúar 2024 11:46