Stefna á skráningu í Kauphöll á næstu mánuðum Atli Ísleifsson skrifar 12. mars 2024 13:55 Rekstrartekjur Íslandshótela námu 16.784 milljónum króna á á síðasta ári. Sævar Guðmundsson Íslandshótel stefna á skráningu félagsins í Kauphöll Íslands á næstu mánuðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandshótelum en samstæðuárshlutareikningur félagsins var sendur Kauphöll Íslands fyrr í dag. Fram kemur að rekstrarhagnaður Íslandshótela fyrir afskriftir (EBITDA) hafi aukist um 51 prósent á milli ára samkvæmt ársreikningi félagsins og verið 4.956 milljónir króna á árinu 2023 samanborið við 3.280 milljónir króna árið 2022. „Hagnaður félagsins á árinu nam rétt tæplega 500 millj. kr., samanborið við tæplega 94 millj. kr. tap árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu 16.784 millj. kr. á síðasta ári, en voru 13.433 millj. árið 2022. Góð afkoma Íslandshótela sýnir styrkan grunn félagsins og öfluga stöðu á markaðnum. Fjöldi ferðamanna til landsins jókst á árinu og var um 2,2 milljónir, samanborið við 1,7 milljónir árið áður og gera greiningardeildir ráð fyrir að fjöldi ferðamanna í ár verði um 2,4 milljónir. Íslandshótel stefna á skráningu félagsins í Kauphöll Íslands á næstu mánuðum og verður félagið þannig betur í stakk búið að grípa frekari tækifæri í ferða- og gistiþjónustu. Mikill áhugi hefur verið á skráningu félagsins, enda vaxtatækifæri fólgin í þessari atvinnugrein. Samhliða hefur félagið ákveðið að starfsfólki verði afhentir hlutir í Íslandshótelum og því þannig þakkað fyrir framlag sitt til uppbyggingar þess og mikilvægi þeirra til framtíðar undirstrikað enn frekar,“ segir í tilkynningunni. Íslandshótel rekur átján hótel með tæplega tvö þúsund herbergi á víða land allt.
Hótel á Íslandi Ferðamennska á Íslandi Kauphöllin Íslandshótel Mest lesið Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Viðskipti innlent Steinunn frá UNICEF til Festu Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Sýn tapaði 239 milljónum Viðskipti innlent Verða ekki Framúrskarandi nema uppfylla lög um kynjahlutfall Framúrskarandi fyrirtæki Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Sjá meira