Jóhann Berg fékk högg á lærið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2024 12:18 Jóhann Berg Guðmundsson hefur ekki áhyggjur af því að hann geti ekki spilað leikinn. Vísir/Sigurður Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagði frá því í viðtali við blaðamann Vísis að hann sé að glíma við meiðsli.
Landsliðsfyrirliðinn óttast það þó ekki að missa af leiknum mikilvæga á móti Ísrael annað kvöld í undanúrslitum umspils um sæti á EM í Þýskalandi í sumar. Jóhann fékk högg og var ekki með íslenska liðinu á æfingu í Búdapest í gær. Hvað er að angra hann? „Bara einhver stífleiki. Ég fékk smá högg á lærið og það er eitthvað sem við þurfum aðeins að passa upp. Allt í góðu,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson við Stefán Árna Pálsson, blaðamann Vísis. Verður hann klár? „Já ég verð klár,“ svaraði Jóhann strax. Jóhann og Åge Hareide landsliðsþjálfari höfðu ekki meiri áhyggjur af þessu en að þeir grínuðust með þetta á blaðamannafundinum í dag. „Það eru alltaf smá högg sem menn þurfa að glíma við en ekkert alvarlegt," sagði Hareide um stöðuna á íslenska hópnum. „Ég er gamall," sagði Jóhann léttur um það af hverju hann var ekki með á æfingu. Staðan sé hins vegar góð. „Það er einstakt tækifæri að vera tveimur leikjum frá því að komast á EM," sagði Jóhann. Leikur Ísraels og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport á morgun. Upphitun hefst tíu mínútur yfir sjö.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið „Ég gæti ekki verið ánægðari“ Handbolti Dagur gæti gert það sem enginn þjálfari hefur afrekað í handboltasögunni Handbolti Hreiðar Levý um skrif Víðis: Að líkja þessu við landráð er pistlahöfundi til skammar Handbolti Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki Enski boltinn Hákon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“ Fótbolti City mætir Real Madrid í umspilinu Fótbolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði Fótbolti Magnaðar móttökur fyrir utan höllina kveiktu í strákunum hans Dags Handbolti Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Fleiri fréttir KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði Tveir íslenskir Nökkvar í Rotterdam City mætir Real Madrid í umspilinu Hákon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“ Aldrei borgað meira fyrir fótboltakonur en á síðasta ári Veðjaði 403 sinnum á leiki í eigin deild Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki Kristianstad um söluna á Hlín: Hefði ekki gerst fyrir fjórum til fimm árum KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Lærisveinar Solskjær úr leik Rauðu djöflarnir áfram taplausir Eggert Aron kom inn af bekknum í tapi gegn Tottenham Orri Steinn nýtti tækifærið Hlín til liðs við Leicester City Sakar Arteta um að ýta undir dómarahatur Gagnrýnir Durán: „Ekki alvöru fótboltamaður“ Cristiano Ronaldo: Minn eigin sonur sagði að Mbappé væri betri en ég Amorim um Rashford: Ef hann breytist þá mun ég nota hann Sjáðu mörkin frá sögulegu lokakvöldi Meistaradeildarinnar Segir norska sambandið hafa stuðningsmenn félaganna að fíflum Félagaskiptaglugginn: Hvaða eftirsótti framherji færir sig um set? City mun mæta Real eða Bayern í umspilinu Hákon kom að marki í stórsigri og Lille tryggði sig beint áfram Sigur á Spáni lyfti Skyttunum upp í þriðja sætið Liverpool tapaði í Hollandi hélt þó toppsætinu Man City komst í umspilið eftir allt saman Í beinni: Lokaumferðin í Meistaradeildinni Freyr sagður vilja Sævar Atla til Brann Leiðarlok hjá Gerrard og Al Ettifaq Sjá meira