Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. apríl 2024 13:31 Guðjón Pétur Lýðsson lék á sínum tíma með Breiðabliki. Hann hefur einnig spilað með Haukum, Val Stjörnunni, Álftanesi, ÍBV, KA og svo Grindavík þar sem hann var síðast. Vísir/Bára Guðjón Pétur Lýðsson er kominn með nýtt lið en hann hefur skipt úr Grindavík í Hauka og spilar því C-deildinni í sumar.
Það má sjá staðfest félagsskipti hans á heimasíðu KSÍ. Næsti leikur Hauka er í dag á heimavelli á móti Bestu deildar liði Vestra í Mjólkurbikarnum. Guðjón er að fara aftur heim á Ásvelli því hann er uppalinn í Haukum og lék með liðinu fyrst árið 2006 og svo aftur tímabilin 2009 til 2010. Haukarnir fengu því þrjá uppalda leikmenn heim í gær því einnig var tilkynnt um að þeir Hallur Húni Þorsteinsson og Óliver Steinar Guðmundsson yrði með liðinu í sumar þar sem Haukarnir reyna að vinna sér sæti í Lengjudeildinni á ný. Guðjón Pétur lék 21 leik með Haukum í efstu deild á sínum tíma og er leikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild og sá þriðji markahæsti (3). Hann hjálpaði Haukum að komast upp úr B-deildinni 2009 en yfirgaf félagið eftir að Haukarnir féllu aftur niður í B-deildina haustið 2010. Í viðtali við fótbolta.net þá sagði Guðjón fyrr í vetur að hann setti stefnuna á að spila í Bestu deildinni í sumar. „Þetta þarf að vera nógu spennandi svo ég stökkvi á það. Er í sjálfstæðum rekstri með góðum mönnum og nóg að gera. Síðustu daga hafa komið nokkrir kostir og hef ég verið að melta þá. Ég er þakklátur Heimi og FH fyrir að fá að æfa við top aðstæður og Ben styrktarþjálfari er orðinn nýr besti vinur. Ég efast ekki um að ég geti styrkt fullt af liðum og kannski gerist eitthvað spennandi annað kvöld," segir Guðjón Pétur við fótbolta.net.
Haukar Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Í beinni: Tottenham - Manchester United | Rauðu djöflarnir eiga harma að hefna Enski boltinn Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Fótbolti Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Enski boltinn Fleiri fréttir Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Sjá meira