FIFPro er farið í mál við FIFA með mörgum deildum í Evrópu eins og ensku úrvalsdeildinni og spænsku deildinni.
Það sem fyllti mælinn var ný heimsmeistarakeppni félagsliða þar sem litla krúttlega HM félagsliða er allt í einu orðið að 32 liða risamóti.
Maheta Molango, framkvæmdastjóri samtaka atvinnufótboltafólks, PFA, hefur verið að kalla eftir breytingum síðan í febrúar en hann heldur því fram að nú hafi Alþjóða knattspyrnusambandið hreinlega gengið of langt.
Players' unions threaten strike over Club World Cup
— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) May 31, 2024
Two days before the Champions League final between Real Madrid and Borussia Dortmund in London, the Premier League, LaLiga, Serie A and the PFA met to study measures to counteract FIFA's plan for a new… https://t.co/prPZ6eCCJh
Hann segist hafa farið inn í búningsklefa fyrir tíu dögum hjá liði þar sem hann heyrði hljóðið í leikmönnum sem eru fórnarlömb þessa mikla leikjaálags.
„Sumir þeirra sögðu: Ég sætti mig ekki við þetta. Við ættum bara að fara í verkfall. Annar sagði: Til hvers. Ég er milljarðamæringur en ég hef ekki tíma til að eyða peningunum,“ sagði Molango. ESPN segir frá.
Álagið á bestu leikmenn hefur aukist statt og stöðugt undanfarin ár. Fleiri leikir og margir knattspyrnustjórar hafa kvartað sáran yfir þessu.
Nú er málið komið svo langt að leikmannasamtökin eru farin að opinbera hugmyndir sínar um verkfall. Hvað FIFA gerir er frekar auðvelt að spá fyrir um. Forráðamenn þar á bæ munu eflaust hóta leikmönnum bönnum og stórum sektum. Það er mun ólíklegra að menn í peningagráðugum höfuðstöðum fótboltans taki mark á kvörtunum leikmanna og fækki leikjunum. Það kemur sér allt of illa peningalega.
„Við munum alltaf reyna að nota pólítísku leiðirnar. Við höfum sent bréf og höfum fengið svar en því miður er tíminn ekki með okkur. Stundum þarf fullorðið fólk, þótt að það það sé að reyna af finna lausn, að fá inn þriðja aðila til að komast að niðurstöðu. Kannski þurfum við gerðardómara eða dómstóla til að ákveða þetta,“ sagði Molango.
Leikmannsamtökin segjast vera til í alvöru baráttu fyrir framtíðarheilsu leikmanna og því eru möguleg verkföll ekki út af borðinu.