Ofursmart heilsárshús Kampus 6. júní 2024 13:41 „Það eina sem þú þarft að gera er að setja niður sökkla og tengir húsið við vatn og rafmagn,“ segir Gunnar Þór Sch. Elfarsson, sölustjóri Kampus. Heilsárshúsin frá Kampus koma fullbúin í heilu lagi og henta vel sem gestahús, sumarbústaðir, heilsárshús eða skrifstofur. Heilsárshúsin frá Kampus koma fullbúin í heilu lagi og henta vel sem gestahús, sumarbústaðir, heilsárshús eða skrifstofur.
Húsin eru það sem kallað er „Turnkey“ eða „Plug & play“ sem þýðir að þau koma tilbúin með öllum innréttingum og tækjum. „Það eina sem þú þarft að gera er að setja niður sökkla og tengir húsið við vatn og rafmagn,“ segir Gunnar Þór Sch. Elfarsson, sölustjóri Kampus. „Við bjóðum upp á fjórar stærðir af húsum, 19 fm, 25 fm, 35 fm og 46 fm. Minni húsin henta einstaklega vel sem gestahús við stærri hús. Eins eru þau frábær fyrir ferðþjónustufyrirtæki en við höfum einmitt verið að selja minni húsin til slíkra fyrirtækja. Stærri húsin henta sem til dæmis heilsárshús, sumarbústaðir, skrifstofur og margt margt fleira.“ Húsin uppfylla íslenska byggingarreglugerð að sögn Gunnars enda teiknuð hér á landi en smíðuð í Lettlandi. „Við erum með fjögur sýningarhús á bílasölunni Braut, Bíldshöfða 3 í Reykjavík, sem eru standard hús frá okkur. Fólk getur svo valið um nánast allt eftir eigin höfði, eins og veggklæðningar og innréttingar. Það hefur verið lang vinsælast að taka timbur eða stál utanhúss því fólk vill hafa húsin sem mest viðhaldsfrí í dag. Húsin taka yfirleitt um 8-10 vikur í framleiðslu en ef óskað er eftir hraðari afhendingartíma er hægt að verða við þeim óskum.“ Það þarf þó að hugsa að ýmsum þáttum áður en hús er keypt. „Fyrst þarf auðvitað lóð. Næsta skref er að kíkja til okkar upp á Bíldshöfða 3 og ákveða hvernig hús hentar þér. Því næst þarf að fá arkitekt til að staðsetja húsið og klára þá útfærslu sem þú vilt hafa á húsinu. Síðan þarf að setja sökkul og rotþró á lóðina og gera rafmagn og vatn klárt. Húsið kemur svo fullbúið og er sett á sökkulinn og stungið í samband við rafmagn og vatn. Einfalt og þægilegt ferli.“ Kampus samstarf Nánari upplýsingar má finna á kampus.is.
Hús og heimili Mest lesið Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira