Íslenski boltinn

Sel­foss og KFA mætast í úr­slitum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gamli refurinn Bjarni Jóhannsson er búinn að koma Selfossi í úrslit Fótbolta.net bikarsins.
Gamli refurinn Bjarni Jóhannsson er búinn að koma Selfossi í úrslit Fótbolta.net bikarsins. sunnlenska.is

Í úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda, munu Selfoss og KFA mætast.

Sumarið hefur verið gott hjá strákunum hans Bjarna Jóhannssonar á Selfossi. Þeir unnu 2. deildina og eru nú komnir í úrslit Fótbolta.net bikarsins eftir sigur á Árbæ, 4-1.

Gonzalo Zamorano skoraði tvö mörk fyrir Selfyssinga og Alexander Clive Vokes og Aron Fannar Birgisson sitt markið hvor. Ragnar Páll Sigurðsson skoraði mark Árbæinga.

Í Fjarðabyggðarhöllinni sigraði KFA Tindastól með tveimur mörkum gegn einu.

Stólarnir náðu forystunni með marki Dominics Furness á 4. mínútu en Eiður Orri Ragnarsson jafnaði fyrir Austfirðinga tveimur mínútum síðar. Á 69. mínútu skoraði Marteinn Már Sverrisson svo sigurmark KFA.

Úrslitaleikur Selfoss og KFA fer fram á Laugardalsvelli á föstudaginn kemur.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×