Viðskipti erlent

Við­­skipta­vinir gjald­þrota raf­­­mynta­­kaup­hallar endur­­heimta milljarða

Kjartan Kjartansson skrifar
Sam Bankman-Fried var stungið í steininn fyrir fjársvikin sem felldu FTX, þriðju stærstu rafmyntakauphöll heims fyrir tveimur árum.
Sam Bankman-Fried var stungið í steininn fyrir fjársvikin sem felldu FTX, þriðju stærstu rafmyntakauphöll heims fyrir tveimur árum. Vísir/EPA

Fyrrverandi viðskiptavinir rafmyntakauphallarinnar FTX eiga von á allt að 16,5 milljörðum dollurum upp í kröfur sínar þegar skiptum á þrotabúinu lýkur. Sumir þeirra gætu fengið allt að fimmtungi hærri upphæð til baka en þeir áttu þegar félagið fór í þrot.

FTX varð gjaldþrota eftir að viðskiptavinir gerðu áhlaup á kauphöllina í kjölfar frétta af vafasömum viðskiptaháttum stjórnenda hennar í nóvember 2022.  Milljónir viðskiptavina hennar misstu þá aðgang að reikningum sínum.

Sam Bankman-Fried, stofnandi og forstjóri FTX, var handtekinn og ákærður fyrir stórfelld fjársvik en hann hafði fært innistæður viðskiptavina FTX út úr kauphöllinni til þess að halda rafmyntavogunarsjóðinum Alameda Research á floti. Alls reyndust átta milljarða dollarar horfnir út úr FTX þegar félagið var tekið til gjaldþrotaskipta. Bankman-Fried var dæmdur í 25 ára fangelsi í fyrra.

Nú segir skiptastjóri FTX að tekist hafi að endurheimta á bilinu 14,7 til 16,5 milljarða dollara af eignum FTX, að hluta til með því að seljar eignir eins og hlut í gervigreindarfyrirtækinu Anthropic. Þannig fái fyrrverandi viðskiptavinir FTX allt að 119 prósent af innistæðum sínum til baka á næstu mánuðum, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Sumum viðskiptavinum finnst það þó ekki nóg. Innistæður þeirra væru mun meira virði ef þeim hefði ekki verið stolið. Þeir benda máli sínu til stuðnings á að virði rafmyntarinnar bitcoin hafi þrefaldast frá því að FTX varð gjaldþrota.


Tengdar fréttir

Kærasta raf­mynta­mógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna

Dómstóll í New York dæmdi Caroline Ellison, stjórnanda hjá rafmyntafyrirtækinu FTX, í tveggja ára fangelsi fyrir sinn þátt í stórfelldum fjársvikum. Hún hlaut vægari dóm fyrir að segja til Sams Bankman-Fried, stofnanda FTX og fyrrverandi kærasta hennar.

Ó­viss fram­tíð raf­mynta­geirans undir smá­sjá eftir­lits­stofnana

Rafmyntageirinn er undir smásjá bandarískra fjármálayfirvalda sem aldrei fyrr eftir að tvær af stærstu rafmyntakauphöllum heims voru kærðar í byrjun vikunnar. Prófessor í fjármálum segir að rafmyntir gætu orðið ónothæfar í kjölfarið en rafmyntafjárfestir telur geirann standa áhlaupið af sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×