Handbolti

Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í við­bót“

Sindri Sverrisson skrifar
Sandra Erlingsdóttir varð markahæst Íslands á HM fyrir ári síðan, þá nýbúin að komast að því að hún væri ólétt.
Sandra Erlingsdóttir varð markahæst Íslands á HM fyrir ári síðan, þá nýbúin að komast að því að hún væri ólétt. IHF

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, segir því hafa fylgt jákvæður hausverkur að velja hópinn sem fer á Evrópumótið í Austurríki síðar í þessum mánuði.

Lilja Ágústsdóttir og Sandra Erlingsdóttir eru meðal þeirra sem ekki verða með á mótinu að þessu sinni. Sandra varð markahæst Íslands á HM fyrir ári síðan, þá nýbúin að komast að því að hún væri ólétt, og Lilja var yngsti leikmaður HM-hópsins.

Lilja meiddist hins vegar í landsliðsverkefni í lok september og Sandra eignaðist sitt fyrsta barn í sumar. Þrátt fyrir að vera komin aftur af stað með sínu félagsliði, og að hafa verið valin í landsliðshópinn fyrir vináttulandsleikina við Pólland á dögunum, þá fer Sandra ekki á EM.

„Lilja er búin að vera hjá okkur í vinstra horninu í nokkur ár. Hún því miður meiddist í verkefninu í septemberlok og hefur lítið spilað,“ sagði Arnar á blaðamannafundi HSÍ í dag.

„Við kölluðum Söndru inn í síðasta verkefni til að tékka á stöðunni. Hún leit mjög vel út og er á réttri leið en við hefðum hugsanlega þurft 1-2 mánuði í viðbót. Það eru ekki nema rétt um fjórir mánuðir síðan að Martin Leo kom í heiminn,“ sagði Arnar.

Átján manna hópinn hans má sjá í fréttinni hér að neðan.

„Þetta var hausverkur og það eru þarna leikmenn sem við þurftum að taka erfiðar ákvarðanir með,“ sagði Arnar á blaðamannafundinum en nánari viðbrögð frá honum birtast á Vísi síðar í dag.

Arnar segir það hafa verið markmiðið síðustu fjögur ár að spila á EM í ár, en þar að auki fékk Ísland svo sæti á HM fyrir ári síðan og stelpurnar okkar mæta því reynslunni ríkari á sitt annað stórmót í röð.

Íslenski hópurinn kemur saman til æfinga á Íslandi á mánudaginn og æfir hér í þrjá daga. Á fimmtudaginn eftir rúma viku verður svo haldið til Sviss og spilað við heimakonur í vináttulandsleikjum, föstudaginn 22. nóvember og sunnudaginn 24. nóvember.

Þriðjudaginn 26. nóvember ferðast íslenska liðið svo til Innsbruck í Austurríki. Fyrsti leikur á EM er gegn Hollandi 29. nóvember. Liðið mætir svo Úkraínu 1. desember og Þýskalandi 3. desember. Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í milliriðla.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×