Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag Smári Jökull Jónsson skrifar 16. nóvember 2024 19:54 Kerem Akturkoglu misnotaði vítaspyrnu í kvöld. Vísir/Getty Tyrkland tók á móti Wales í hinum leik í riðli Íslands í Þjóðadeildinni í kvöld. Úrslitin í leiknum þýða að Ísland á fyrir höndum úrslitaleik gegn Wales á þriðjudaginn.
Íslenska landsliðið þurfti að treysta á að Tyrkir myndu ekki tapa leiknum gegn Wales í kvöld til að eiga möguleik á 2. sætinu í öðrum riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar. Leikurinn fór fram í Tyrklandi og voru heimamenn sterkari aðilinn. Þeir áttu alls 25 marktilraunir í leiknum en gekk illa að finna netmöskvana. Þar sem Ísland vann sigur á Svartfjallalandi var ljóst að Wales þurfti sigur til að gulltryggja annað sætið en þeir áttu fá marktækifæri í leiknum. Á 89. mínútu fengu Tyrkir síðan vítaspyrnu og var það Karem Akturkoglu sem fékk tækifærið til að tryggja heimaliðinu sigur en Akturkoglu skoraði þrennu í 3-1 sigrinum gegn Íslandi í september. Hann skaut hins vegar í stöngina og framhjá og leiknum lauk með markalausu jafntefli. Klippa: Vítaspyrna í leik Tyrklands og Wales Þetta þýðir að Tyrkir eru í efsta sæti í öðrum riðli þegar ein umferð er eftir. Þeir eru með 11 stig en Wales í 2. sæti með 9 stig. Ísland er í 3. sætinu með 7 stig og gæti staðan því breyst á þriðjudaginn. Ísland mætir þá Wales í Cardiff á meðan Tyrkir mæta Svartfellingum á útivelli.
Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Sjá meira