Tónlist

Fred again í sal en ekki á sviði: „Orð­rómur sem við höfðum enga stjórn á“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Fred again skemmti sér eflaust vel á tónleikum félaga sinna en lét ekki sjá sig uppi á sviði.
Fred again skemmti sér eflaust vel á tónleikum félaga sinna en lét ekki sjá sig uppi á sviði.

Skipuleggjendur tónleika rafdúósins í Joy anonymous sem komu fram með vinum í Hvalasafninu á laugardagskvöld segjast enga stjórn hafa haft á orðrómi þess efnis að breski plötusnúðurinn Fred again myndi koma fram á tónleikunum. Dæmi er um að miðar á tónleikana hafi gengið kaupum og sölum fyrir tugi þúsunda en plötusnúðurinn var í salnum án þess þó að fara upp á svið.

„Við nefndum aldrei nafn hans í neinu af okkar markaðsefni,“ segir Guðjón Böðvarsson einn skipuleggjenda tónleikanna á vegum LP Events í samtali við Vísi. Tónleikarnir fóru fram á laugardagskvöld eftir að þeim hafði verið frestað á föstudagskvöldinu þar sem ekki höfðu fengist tilskilin leyfi til slíks viðburðarhalds á Hvalasafninu. Annar skipuleggjenda Benedikt Freyr Jónsson segir tónleikana hafa heppnast prýðilega.

Breski plötusnúðurinn Fred again er einn sá heitasti í heimi um þessar mundir. Hefur hann reglulega komið óvænt fram á tónleikum vina sinna í Joy Anonymous og gert með þeim hin ýmsu lög. Lögðu því flestir saman 2+2 þegar fréttist af því að plötusnúðurinn væri staddur hér á landi. 

„Við vorum klárlega meðvituð um það að það væri sumir þarna sem vildu sjá hann. Svo kom þetta fram í fjölmiðlum og fólk birti myndir af honum á samfélagsmiðlum, svo þessar sögusagnir voru fljótar að fara á kreik,“ segir Guðjón. „Þeir eru bestu vinir og hafa oft spilað saman áður en við sögðum aldrei að hann myndi koma á svið. Þetta var orðrómur sem við höfðum enga stjórn á, sem dreifðist mjög hratt, því miður.“

Gríðarleg eftirvænting skapaðist fyrir tónleikunum og seldist upp á þá á skotstundu. Mikil eftirspurn var enn eftir miðum þegar þeir höfðu selst upp og eru dæmi um að fólk hafi selt miða á tuttugu þúsund krónur stykkið. Guðjón segir að skipuleggjendum þyki afar leitt að heyra af því. Tónleikarnir hafi hinsvegar verið gríðarlega vel heppnaðir og úrvalslið tónlistarmanna komið fram þrátt fyrir allt.


Tengdar fréttir

Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni

Einn heitasti plötusnúður í heimi um þessar mundir Fred again er staddur á landinu. Hann spókaði sig um í Melabúðinni í vesturbæ Reykjavíkur í gær þar sem hann hitti engan annan en Rögnu Sigurðardóttur frambjóðanda Samfylkingarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×