Arsenal vann sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti nýliðum Ipswich í lokaleik 18. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Skytturnar lentu í áfalli í síðasta leik þegar Bukayo Saka, einn allra besti leikmaður liðsins, meiddist aftan á læri.
Í hans stað var Leandro Trossard mættur í byrjunarliðið og hann lagði upp eina mark leiksins fyrir Kai Havertz á 23. mínútu.
Þrátt fyrir mikla yfirburði Arsenal tókst liðinu ekki að bæta við mörkum og niðurstaðan varð 1-0 sigur heimamanna.
Með sigrinum lyftir Arsenal sér aftur upp fyrir Chelsea í annað sæti deildarinnar. Liðið er nú með 36 stig eftir 18 leiki, sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik til góða. Ipswich situr hins vegar í 19. sæti með 12 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.