Árið 2024 ræddum við um ýmiss mál við sérfræðinga sem voru tilbúnir til að gefa okkur ýmiss góð ráð og fræðslu um ólíkar áskoranir sem þó margir glíma við.
En Áskorun á Vísi fjallar á mannlegan hátt um málin þar sem við tökumst á við okkur sjálf, mál innan fjölskyldunnar, önnur samskipta- og/eða tilfinningatengd mál, veikindi, fíkn, bata, sorg, dauða, aldurstengd mál og fleira.
Sérstök áhersla var lögð á 50+ ára hópinn, þar á meðal að heyra um kaupréttarsamninga og fleira sem Pétur Steinn Guðmundsson lögfræðingur hefur liðsinnt okkur með.
Félagskvíði er eitthvað sem hrjáir jafnvel fleira fólk en okkur grunar enda mikill lestur á viðtalinu við Ásmund Gunnarsson, sérfræðingi í klínískri sálfræði. Margir þekkja félagskvíða betur undir heitinu félagsfælni.
Sunna Ólafsdóttir, fjölskyldufræðingur, EMDR meðferðaraðili og klínískur félagsráðgjafi hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni fræddi okkur um helstu mál sem tekin eru fyrir í fjölskyldumeðferðum.
Oft samskiptaleysi þar sem fjölskyldumeðlimir virðast svolítið vera búin að gleyma hvort öðru.
Sóley Dröfn Davíðsdóttir sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni útskýrði fyrir okkur hversu alvarleg og hamlandi þráhyggja getur verið fyrir fólk. Sem þó er hægt að brjótast úr jafnvel á örfáum dögum með aðstoð fagfólks.
Hver svo sem þráhyggjan er...
Framhjáhöld er áskorun sem mörg pör þurfa að takast á við, jafn erfitt og það getur nú verið. En Íris Eik Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi fjölskyldu- og sálfræðiþjónustunnar Samskiptastöðin fór með okkur í gegnum helstu skrefin sem því fylgja.
Og útskýrði fyrir okkur hvernig það tilfinningalega ferli er fyrir flest pör að fara í gegnum.
Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur ræddi við okkur um mikilvægi þess að velja okkur réttan maka.
Eitthvað sem hún segir að fleiri megi vanda sig meira við.
Enda staðreynd að fólk, jafnvel á efri árum, er komið á það stig í hjónabandinu að það einfaldlega þolir varla hvort annað eins og Íris Eik Ólafsdóttir ræddi við okkur um.