Lífið

Harm­leikur í Hollywood: Hús fræga fólksins fuðra upp

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Billy Crystal, Paris Hilton, Eugene Levy og Anthony Hopkins hafa öll misst heimili sín í eldinum.
Billy Crystal, Paris Hilton, Eugene Levy og Anthony Hopkins hafa öll misst heimili sín í eldinum. Vísir/Getty

Mikill fjöldi Hollywood stjarna hefur neyðst til að flýja heimili sín vegna þeirra gríðarlegu skógarelda sem nú brenna í úthverfum Los Angeles borgar. Þá hefur töluverður fjöldi stjarna misst heimili sín í úthverfi borgarinnar, Pacific Palisades og í Malibu.

Meðal þeirra sem misst hafa húsnæði í eldinum eru Paris Hilton, Anna Faris, Eugene Levy, Anthony Hopkins, Billy Crystal, John Goodman, Cobie Smulders auk hjónanna Adam Brody og Leighton Meester og þeirra Miles Teller og Keleigh Teller og Spencer Pratt og Heidi Montag.

PageSix greinir frá því að um sé að ræða elda sem kviknað hafa í Pacific Palisades hverfinu í Los Angeles. Vísir ræddi við leikstjórann Egil Örn Egilsson í morgun sem býr einmitt í hverfinu og er meðal þeirra sem hafa neyðst til þess að flýja heimili sín.

Stjörnurnar hafa keppst við að birta yfirlýsingar á samfélagsmiðlum vegna þessa náttúruhamfara. Í yfirlýsingu til fjölmiðla segist Billy Crystal vera harmi sleginn yfir því að hafa misst hús sitt og eiginkonu sinnar Janice Crystal. 

„Janice og ég bjuggum í húsinu okkar síðan 1979. Við ólum börnin okkar og barnabörnin upp þarna. Hver einasti sentímetri hús okkar var fullur af ást. Fallegar minningar sem ekki er hægt að taka frá okkur. Við erum miður okkar að sjálfsögðu en með stuðningi barna okkar og vina munum við komast í gegnum þetta. Pacific Palisades samfélagið er samfélag magnaðs fólks og við vitum að það mun rísa upp aftur. Þetta er heimili okkar.“

Paris Hilton segir engan eiga að þurfa að upplifa að horfa á hús sitt brenna í beinni útsendingu í sjónvarpinu en strandarhús hennar á Malibu brann til kaldra kola. Hún segir húsið stútfullt af minningum, þetta hafi verið heimili hennar þar sem hún hafi reynt margt.

Mörg heimili í hættu

Fram kemur í umfjöllun Page Six að mikill fjöldi heimila annarra stjarna sé auk þess í hættu. Þar eru nefndar stjörnur líkt og Ben Affleck, sem var skipað að yfirgefa heimili sitt og segir Page Six hann hafa leitað skjóls hjá barnsmóður sinni Jennifer Garner.

Heimili hjónanna Tom Hanks og Rita Wilson er auk þess í hættu auk heimilis James Woods. Woods tók einmitt myndband af eldunum þegar þeir voru komnir í allra næsta nágrenni við hús hans. Star Wars stjarnan Mark Hamill hefur auk þess yfirgefið heimili sitt auk Police Academy leikarans Steve Guttenberg.

Stórleikkonan Jamie Lee Curtis hefur jafnframt lýst því yfir að heimili hennar sé í hættu. Þá kemur fram í umfjöllun miðilsins að allar líkur séu á að heimili Harry Bretaprinsar og Meghan Markle verði einnig í hættu haldi eldarnir áfram sókn sinni. Þau búa í nærliggjandi hverfi, er ber heitið Montecito.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.