Enski boltinn

Everton endaði furðu­legan dag á því að fara á­fram í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Beto skoraði fyrra mark Everton á móti Peterborough á Goodison Park í kvöld.
Beto skoraði fyrra mark Everton á móti Peterborough á Goodison Park í kvöld. AP/Peter Byrne

Fulham, Everton og Cardiff City komust öll áfram í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld.

Úrvalsdeildarliðið Everton vann 2-0 sigur á C-deildarliði Peterborough á Goodison Park en þetta var furðulegur dagur því Everton rak knattspyrnustjóra sinn, Sean Dyche, þremur tímum fyrir leik.

Leighton Baines og Séamus Coleman stýrðu liðinu til sigurs í leiknum í kvöld.

Beto skoraði fyrsta mark leiksins á 42. mínútu eftir stoðsendingu frá Harrison Armstrong.

Seinna markið kom úr vítaspyrnu á áttundu mínútu í uppbótatímanum.  Jarrad Branthwaite fiskaði vítið og Iliman Ndiaye skoraði úr því.

Ashley Young kom inn á sem varamaður hjá Everton en fékk þó ekki að spila á móti syni sínum Tyler Young sem sat allan tímann á bekknum hjá Peterborough.

Úrvalsdeildarliðið Fulham vann 4-1 sigur á b-deildarliði Watford.

Rodrigo Muniz kom Fulham í 1-0 á 26. mínútu en Rocco Vata jafnaði metin sjö mínútum síðar.

Raul Jiménez kom inn á sem varamaður í hálfleik og kom Fulham aftur yfir með marki úr víti á 49. mínútu. Joachim Andersen skoraði þriðja markið á 65. mínútu.

Timothy Castagne innsiglaði sigurinn með fjórða markinu á 85. mínútu eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Martial Godo.

Cardiff City vann 1-0 útisigur á Sheffield United í uppgjöri tveggja b-deildarliða.

Cian Ashford kom Cardiff yfir á 19. mínútu leiksins og það reyndist eina mark leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×