Rán, Guðjón, Kristín og Stefán Máni hrepptu hnossið Jakob Bjarnar skrifar 29. janúar 2025 20:36 Stefán Máni (næstlengst til vinstri) hlaut Blóðdropann að þessu sinni en Guðjón, Rán og Kristín hlutu Íslensku bókmenntaverðaunin að þessu sinni. Systir Kristínar tók við verðlaununum fyrir hennar hönd. Með þeim á myndinni eru Logi Einarsson menntamálaráðherra, Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Systir Kristínar heitir Guðrún Yrsa Ómarsdóttir. Mynd/Arnþór Birkisson Þeir rithöfundar sem þóttu að mati íslenskra bókaútgefenda hafa skarað fram úr á árinu 2024 voru afhent hin Íslensku bókmenntaverðlaun. Sérstök athöfn var á Bessastöðum þar sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti verðlaunin og ávarpaði samkomuna.
Tilnefningar eru kynntar þann 1. desember ár hvert og verðlaunin síðan veitt síðla janúar eða í upphafi febrúar. Í tilkynningu frá Fíbút segir að óháðar tilnefninganefndir, skipaðar þremur dómbærum fulltrúum hver, velji þær fimm bækur í hverjum flokki sem helst þykja skara fram úr. „Lokaval er í höndum formanna nefndanna fjögurra og forsetaskipaðs dómnefndarformanns. Velja þeir eina bók úr hverjum flokki þannig að þrjár bækur hljóta á endanum Íslensku bókmenntaverðlaunin og ein Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann.“ Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verðlaunanna sama ár og þær koma út, hvort sem þeir eru í Félagi íslenskra bókaútgefenda eða ekki, og greiða fyrir það hóflegt gjald. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir höfund hvers verðlaunaverks. Blóðdropann hlaut að þessu sinni: Stefán Máni Dauðinn einn var vitni Útgefandi: Sögur útgáfa Stefán Máni er vel að Blóðdropanum kominn. Hann sendi frá sér eina sína bestu bók fyrir síðustu jól, um það eru flestir sammála.Mynd/Arnþór Birkisson Umsögn lokadómnefndar: Hér er á ferðinni háspennuævintýri þar sem lögreglan tekst á við yfirvofandi ógn sem steðjar að lífi íbúa Reykjavíkur í kappi við tímann. Atburðarásin er hröð og spennandi og nær niðurtalningin sem sagan hverfist um sterkum tökum á lesandanum. Um leið heldur höfundur áfram að þróa litríka persónu og innri togstreitu hins breyska lögreglumanns Harðar Grímssonar á sannfærandi hátt. Persónulýsingar eru lifandi og marghliða og andrúmsloft ótta og hryllings hratt og örugglega byggt upp, en um leið er gætt að húmor og fínni blæbrigðum mannlífsins. Textinn er myndríkur og sögusviðið og atburðarásin teiknast ljóslifandi upp í huga lesanda. Barna- og ungmennabækur: Íslensku bókmenntaverðlaunin skiptast í þrjá flokka og þeir sem að þessu sinni hlutu verðlaunin voru: Rán Flygenring Tjörnin Útgefandi: Angústúra Rán Flygenring hefur farið sigurför um heim barna- og unglingabóka undanfarin árin og er hún vel að bókmenntaverðlaununum komin.Mynd/Arnþór Birkisson Umsögn lokadómnefndar: Tjörnin er marglaga saga um undraveröld mitt í hversdegi barna sem finna uppþornaða tjörn í garðinum sínum, sem síðan fyllist lífi. Bókin hentar börnum á öllum aldri jafnt sem fullorðnum og er endalaus uppspretta samtala og nýrra uppgötvanna, alveg eins og sjálf tjörnin. Komið er inn á margvísleg viðfangsefni, svo sem vináttu, eignarrétt, stjórn, samvinnu og jafnvel auðlindanýtingu, en allt undir formerkjum ævintýrisins og leiksins. Ímyndunaraflið ræður för í fjörlegum myndum og vinna þær og textinn vel saman auk þess sem einstakur myndheimur Ránar bætir miklu við texta sögunnar. Tjörnin er fallegt og skemmtilegt verk sem lesandinn getur sökkt sér í og sagan dýpkar með hverjum lestri. Fræðibækur og rit almenns efnis: Guðjón Friðriksson Börn í Reykjavík Útgefandi: Mál og menning Mynd/Arnþór Birkisson Umsögn lokadómnefndar: Börn í Reykjavík er yfirgripsmikið og fróðlegt verk um sögu barna í höfuðborginni allt frá þéttbýlismyndun til dagsins í dag. Stíllinn er leikandi léttur og skrifað er af nærfærni og næmni um málefni barna og fjölskyldna, aðbúnað þeirra og umhverfi og textinn dýpkaður með persónulegum sögum. Höfundur dregur einnig fram daglegt líf barna á tímabilinu – leikina, skemmtanirnar, skólamál og skyldurnar – og tengir þetta við þróun og breytingar í borgarsamfélaginu sem var að mótast. Sá fjöldi mynda sem prýðir bókina eykur heimildargildi hennar til muna og með þeim og lifandi frásagnarstílnum tekst Guðjóni að vekja söguna til lífs og draga upp skýra mynd af þróun samfélagsins og áhrifum hennar á börnin. Börn í Reykjavík er tímamótaverk sem er líklegt til að ná til breiðs lesendahóps og auka skilning á stöðu og veruleika barna í nútíð og þátíð. Skáldverk: Kristín Ómarsdóttir Móðurást: Draumþing Útgefandi: Mál og menning Kristín er reyndur höfundur og henni þótti takast einstaklega vel upp í skáldaðri ævisögu langömmu sinnar.Benedikt Umsögn lokadómnefndar: Móðurást: Draumþing, skálduð ævisaga langömmu Kristínar, er fallega stíluð saga liðinna kynslóða á ofanverðri nítjándu öld. Framsetningin er brotakennd og ljóðræn og sýnir nýstárlega nálgun við ritun sögulegrar skáldsögu. Höfundi tekst listilega að skapa sögusvið sem er í senn framandi og kunnuglegt, einangrað og opið og veita innsýn í brothætt sálarlíf unglingsstúlku sem stendur á þröskuldi fullorðinsára og nýrra kennda, bundin af öllum þeim væntingum og takmörkunum sem samfélag hennar býr henni. Jónsmessunóttin, sem rammar frásögnina inn, leggur yfir hana blæ töfra og annarleika sem samræmist einkar vel hálfsögðum sögum og því sem liggur á milli lína. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, stutta tölu og forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. Verðlaunahöfundar ávörpuðu gesti og Una Torfadóttir flutti tvö lög, Í löngu máli og Dropi í hafi. Lag og texti: Una Torfadóttir. Lokadómnefnd skipuðu þau Björn Teitsson, Kristín Ásta Ólafsdóttir, Unnar Geir Unnarsson, Viðar Eggertsson og Kristín Ingu Viðarsdóttir, sem var formaður nefndarinnar. Systir Kristínar Guðrún Yrsa Ómarsdóttir tók við verðlaununum fyrir hennar hönd í kvöld.Mynd/Arnþór Birkisson Íslensku bókmenntaverðlaunin Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, fagurbækur annars vegar og fræðibækur og rit almenns efnis hins vegar. Þannig héldust verðlaunin til ársins 2013 en þá bættist við flokkur barna- og ungmennabóka. Árið 2020 var flokki fagurbóka eða fagurbókmennta eins og einnig var notað, breytt í flokk skáldverka. Árið 2022 tók Félag íslenskra bókaútgefenda að sér framkvæmd og fjármögnun Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans. Verðlaunaveiting þeirra og tilnefningar fara fram samhliða Íslensku bókmenntaverðlaununum. Þeir sem hlotið hafa Íslensku bókmenntaverðlaunin eru: 1989 Stefán Hörður Grímsson 1990 Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson 1991 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson 1992 Þorsteinn frá Hamri og Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson 1993 Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson 1994 Vigdís Grímsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir 1995 Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead 1996 Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason 1997 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson 1998 Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson 1999 Andri Snær Magnason og Páll Valsson 2000 Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson 2001 Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir 2002 Ingibjörg Haraldsdóttir og Pétur M. Jónasson, Páll Hersteinsson 2003 Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson 2004 Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson 2005 Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Johannessen, Silja Aðalsteinsdóttir og Eiríkur Þorláksson 2006 Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason 2007 Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson 2008 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson 2009 Guðmundur Óskarsson og Helgi Björnsson 2010 Gerður Kristný og Helgi Hallgrímsson 2011 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson 2012 Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar F. Guðmundsson 2013 Andri Snær Magnason, Guðbjörg Kristjánsdóttir og Sjón 2014 Bryndís Björgvinsdóttir, Snorri Baldursson og Ófeigur Sigurðsson 2015 Gunnar Helgason, Gunnar Þór Bjarnason, og Einar Már Guðmundsson 2016 Hildur Knútsdóttir, Ragnar Axelsson og Auður Ava Ólafsdóttir 2017 Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler, Unnur Þóra Jökulsdóttir og Kristín Eiríksdóttir. 2018 Sigrún Eldjárn, Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir, Jón Baldur Hlíðberg og Hallgrímur Helgason. 2019 Bergrún Íris Sævarsdóttir, Jón Viðar Jónsson, og Sölvi Björn Sigurðsson 2020 Arndís Þórarinsdóttir, Hulda Sigrún Bjarnadóttir, Sumarliði R. Ísleifsson og Elísabet Kristín Jökulsdóttir 2021 Þórunn Rakel Gylfadóttir, Sigrún Helgadóttir og Hallgrímur Helgason 2022 Arndís Þórarinsdóttir, Ragnar Stefánsson og Pedro Gunnlaugur Garcia 2023 Gunnar Helgason og Rán Flygenring, myndhöfundur, Haraldur Sigurðsson og Steinunn Sigurðardóttir 2024 Rán Flygenring, Guðjón Friðriksson og Kristín Ómarsdóttir Samtals hafa frá upphafi 83 höfundar fengið verðlaunin, eftirfarandi oftar en einu sinni: Guðjón Friðriksson (4), Andri Snær Magnason (3), Hallgrímur Helgason (3), Arndís Þórarinsdóttir (2), Guðbergur Bergsson (2), Gunnar Helgason (2), Hörður Ágústsson (2), Rán Flygenring (2), Silja Aðalsteinsdóttir (2) og Steinunn Sigurðardóttir (2). Þeir sem hlotið hafa Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann eru: 2007 Stefán Máni: Skipið (útg. 2006) 2008 Arnaldur Indriðason: Harðskafi (útg. 2007) 2009 Ævar Örn Jósepsson: Land tækifæranna (útg. 2008) 2010 Helgi Ingólfsson: Þegar kóngur kokm (útg. 2009) 2011 Yrsa Sigurðardóttir: Ég man þig (útg. 2010) 2012 Sigurjón Pálsson: Klækir (útg. 2011) 2013 Stefán Máni: Húsið (útg. 2012) 2014 Stefán Máni: Grimmd (útg. 2013) 2015 Yrsa Sigurðardóttir: DNA (útg. 2014) 2016 Óskar Guðmundsson: Hilma (útg. 2015) 2017 Arnaldur Indriðason: Petsamo (útg. 2016) 2018 Lilja Sigurðardóttir: Búrið (útg. 2017) 2019 Lilja Sigurðardóttir: Svik (útg. 2018) 2020 Sólveig Pálsdóttir: Fjötrar (útg. 2019) 2021 Yrsa Sigurðardóttir: Bráðin (útg. 2020) 2022 Ragnheiður Gestsdóttir: Farangur (útg. 2021) 2022 Skúli Sigurðsson: Stóri bróði 2023 Eva Björg Ægisdóttir: Heim fyrir myrkur 2024 Stefán Máni: Dauðinn einn var vitni Ártal Blóðdropans miðaðist við afhendingarár verðlauna en ekki útgáfuár bókar fram til ársins 2023 þegar árinu var breytt til samræmis við útgáfuár verðlaunabókar, líkt og í tilviki Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Samtals hafa frá upphafi 12 rithöfundar fengið verðlaunin, eftirfarandi oftar en einu sinni: Stefán Máni (4), Yrsa Sigurðardóttir (3), Arnaldur Indriðason (2) og Lilja Sigurðardóttir (2).
Bókmenntir Bókaútgáfa Íslensku bókmenntaverðlaunin Menning Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Mest lesið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Lífið Mesta mýtan að fólkið sé grimmt og dónalegt Lífið Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Lífið Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Menning „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Lífið samstarf „Hann var of góður fyrir þennan grimma heim sem við búum í“ Lífið Skinkukallinn er víða Lífið Heitasta fólk Kópavogs blótaði þorrann á stærsta þorrablótinu Lífið Rán, Guðjón, Kristín og Stefán Máni hrepptu hnossið Lífið Fleiri fréttir Innlit í fataskáp Dóru Júlíu Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Mesta mýtan að fólkið sé grimmt og dónalegt Rán, Guðjón, Kristín og Stefán Máni hrepptu hnossið Enn einn breski erfinginn í heiminn Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Will Ferrell ætlar með Husavik á Broadway Skinkukallinn er víða Jörundur og Magdalena selja íbúð á eftirsóttum stað „Hann var of góður fyrir þennan grimma heim sem við búum í“ „Mér finnst ekkert skemmtilegra en að spila bridge“ „Sköpunargáfan er svo mikill prakkari að hún ullar á plön“ Tanja Ýr eignaðist dreng Kornungur og í vandræðum með holdris Helmingur labbar út þegar komið er að því að teygja Ekki bara þorrablót heldur líka Reifiblót Okkar meyrasti maður Ódýr kvöldmatur að hætti Lindu Ben Selur tvær íbúðir í fallegu húsi í miðbænum „Ef ég yrði sendiherra þá myndi eitthvað hræðilegt gerast“ Óvæntur afrakstur ástarævintýris á Grund gerði allt vitlaust „Ég vissi að minn bati væri á mína ábyrgð“ Áslaug Arna og KFC á þorrablóti Aftureldingar Sýni þörfina fyrir nándarráðgjafa „Er Sophia dauður?“ Eik tók hæð við Rauðalæk í gegn Heitasta fólk Kópavogs blótaði þorrann á stærsta þorrablótinu Hreyfði sig í 30 mínútur á hverjum einasta degi í heilt ár Lauk náminu á sterkasta hugvíkkandi efni jarðar Sjá meira