Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu. Þar segir að verðlaunin hafi verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) frá árinu 1999. Edduverðlaunin verða afhent þann 26. mars í beinni útsendingu á Rúv.
Á síðasta ári voru kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin aðskilin og Edduverðlaunin veitt í fyrsta sinn fyrir kvikmyndaverk eingöngu. ÍKSA sér áfram um Edduverðlaunin, þar sem eingöngu er verðlaunað fyrir kvikmyndaverk. ÍKSA á ekki aðkomu að fyrirhuguðum sjónvarpsverðlaunum, sem nýlega voru kynnt.
Á Eddunni 2025 verða veitt samtals tuttugu verðlaun til kvikmyndaverka sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2024.
Þá verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt, ásamt því að erlend kvikmynd ársins verður verðlaunuð sem og uppgötvun ársins en þau verðlaun fær einstaklingur sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu.
Alls bárust 72 verk og 129 innsendingar til fagverðlauna að þessu sinni. Met var slegið í innsendum verkum í ár en aukningin frá því í fyrra er rúm 80%.
Heimildamyndir voru átján, heimildastuttmyndir ellefu, kvikmyndir í fullri lengd níu, stuttmyndir 26 og erlendar kvikmyndir átta. Fjörutíu einstaklingar sátu í átta valnefndum fyrir hina tuttugu verðlaunaflokka. Meðlimir ÍKSA munu kjósa um tilnefningarnar og stendur kosning frá 1. mars til.17. mars. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.
Tilnefningar eru sem hér segir:
BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS |
Geltu |
Heimavist |
Kirsuberjatómatar |
ERLEND KVIKMYND ÁRSINS |
All of us strangers |
Elskling |
Perfect Days |
Poor things |
Substance |
HEIMILDARMYND ÁRSINS |
Fjallið það öskrar |
Kúreki Norðursins, sagan af Johnny King |
The Day Iceland Stood Still |
HEIMILDARSTUTTMYND ÁRSINS |
Kirsuberjatómatar |
Ómur jóla |
Vélsmiðja 1913 |
KVIKMYND ÁRSINS |
Ljósbrot |
Ljósvíkingar |
Snerting |
STUTTMYND ÁRSINS |
Fár |
Flökkusinfónía |
O |
BRELLUR ÁRSINS |
Jörundur Rafn Arnarson, Christian Sjostedt |
Árni Gestur Sigfússon |
Michael Denis |
BÚNINGAR ÁRSINS |
Helga Rós Hannam |
Arndís Ey |
Margrét Einarsdóttir |
GERVI ÁRSINS |
Evalotte Oosterop |
Tinna Ingimarsdóttir |
Ásta Hafþórsdóttir |
HANDRIT ÁRSINS |
Rúnar Rúnarsson |
Snævar Sölvason |
Ólafur Jóhann Ólafsson og Baltasar Kormákur |
HLJÓÐ ÁRSINS |
Agnar Friðbertsson, Birgir Tryggvason |
Björn Viktorsson |
Kjartan Kjartansson |
KLIPPING ÁRSINS |
Andri Steinn Guðjónsson |
Jussi Rautaniemi |
Sigurður Eyþórsson |
KVIKMYNDATAKA ÁRSINS |
Sophia Olsson |
Kerttu Hakkarainen |
Bergsteinn Björgúlfsson |
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI |
Björn Jörundur Friðbjörnsson |
Egill Ólafsson |
Þorsteinn Gunnarsson |
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI |
Björn Thors |
Mikael Kaaber |
Pálmi Kormákur |
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI |
Elín Hall |
Helga Braga Jónsdóttir |
Vigdís Hrefna Pálsdóttir |
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI |
Katla Njálsdóttir |
Sólveig Arnarsdóttir |
Yoko Narahashi |
LEIKMYND ÁRSINS |
Hulda Helgadóttir |
Snorri Freyr Hilmarsson |
Sunneva Ása |
LEIKSTJÓRI ÁRSINS |
Rúnar Rúnarsson |
Snævar Sölvason |
Baltasar Kormákur |
TÓNLIST ÁRSINS |
Kristján Sturla Bjarnason |
Magnús Jóhann |
Högni Egilsson |