Lífið

Hlátra­sköll og bongó­trommur á for­sýningu Alheimsdraumsins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fyrsti þátturinn af Alheims draumnum verður sýndur á Stöð 2 á föstudagskvöld.
Fyrsti þátturinn af Alheims draumnum verður sýndur á Stöð 2 á föstudagskvöld. Hulda Margrét

Sérstök forsýning var á fyrstu tveimur þáttunum af Alheimsdrauminum í Sambíóunum Egilshöll í gærkvöldi. Viðtökurnar voru vægast sagt góðar en áhorfendur grétu hreinlega úr hlátri í rúman klukkutíma. 

Í þáttunum fá áhorfendur að fylgjast með þeim Audda, Steinda, Sveppa og Pétri Jóhanni sem skipa tvö lið þeysast um heiminn og leysa ævintýralega skemmtilegar þrautir.

„Besta leiðin til að lýsa Draumnum er þannig að þetta er jafn gaman og þetta er erfitt,“ sagði Auðunn Blöndal í samtali við Vísi á dögunum. Hann sagði óhætt að fullyrða að nýjasta serían væri sú klikkaðasta hingað til en fimm ár eru síðan strákarnir héldu síðast utan í Suður-Ameríska Draumnum. Meðal landa sem strákarnir ferðast til að þessu sinni eru Nýja-Sjáland, Filippseyjar og Ástralía.

Áður hafa verið framleiddar þáttaraðirnar Ameríski Draumurinn, Evrópski Draumurinn, Asíski Draumurinn og Suður Ameríski Draumurinn en í þessari nýjustu þáttaröð er allur heimurinn undir.

Áskrifendur Stöðvar 2 megi eiga von á góðu annað kvöld þegar fyrsti þátturinn fer í loftið.

Hér að neðan má sjá stiklu úr þáttunum:

Fjölmennt var sýningunni og meðal gesta voru Erpur Eyvindarson, Væb-bræðurnir Matthías Davíð og Hálfdán Helgi, Eva Ruza, Simmi Vill, Binni Glee, Mari Jaersk, útvarpsmennirnir Egill Ploder og Rikki G, og Birgitta Líf Björnsdóttir.

Hulda Margrét ljósmyndari mætti á svæðið og myndaði gleðskapinn.

Væb-bræður létu sig ekki vanta.Hulda Margrét
Hressir félagar.Hulda Margrét
Útvarpsmennirnir Egill Ploder og Rikki ásamt dóttur Rikka.Hulda Margrét
Eiður Birgisson, Lísbet og Erpur Eyvindarson.Hulda Margrét
Davíð Rúnar hnefaleikakappi og Heiður Ósk förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School.Hulda Margrét
Sveppi smellir einum kossi á mömmu Péturs.Hulda Margrét
Eva dóttir Egils Einarsson, Gillz, að snúa lukkuhjólinu.Hulda Margrét
Benni, Allan, Fannar og Hannes.Hulda Margrét
Sveppi, Pétur, Auddi og Steindi.Hulda Margrét
Raunveruleikastjarnan Binni Glee mætti með vinkonu sinni.Hulda Margrét
Það var lifandi tónlist og stuð fyrir sýningu.Hulda Margrét
Jón Gunnar Geirdal mætti með fjölskyldunni.Hulda Margrét
Tómas Steindórsson útvarpsmaður og Hrafnhildur Lúhtersdóttir.Hulda Margrét
Systurnar Eva Ruza og Tinna ásamt vinum.Hulda Margrét
Alheims draumurinn.
Flottir félagar!Hulda Margrét
Sigmar Vilhjálmsson ásamt sonum sínum og tengdadóttur.Hulda Margrét
Feðgarnir Ólafur Thors og Fannar.Hulda Margrét
Þóra Björg Clausen og Eva Georgs-Ásudóttir mættu ásamt sonum sínum.Hulda Margrét
Guðjón Smári útvarpsmaður á FM97 í góðum félagsskap.
Félagarnir þökkuðu fjölskyldum þeirra fyrir allan stuðninginn og þolinmæðina.Hulda Margrét
Áhorfendur virtust afar ánægðir með þættina!Hulda Margrét





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.