Kaupmáttur jókst á milli ára Kjartan Kjartansson skrifar 4. apríl 2025 09:35 Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur nú aukist um svipað hlutfall undanfarin tvö ár. Vísir/Vilhelm Áætlað er að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila á mann hafi aukist um 2,8 prósent í fyrra borið saman við árið 2023. Á sama tímabili jókst verðbólga um 5,9 prósent. Laun hækkuðu um 6,6 prósent að meðaltali á milli ára í fyrra.
Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 10,8 prósent árið 2024 borið saman við fyrra ár samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum Hagstofu íslands. Ráðstöfunartekjur á mann námu tæplega 6,3 milljónum króna á árinu 2024 og jukust um 8,8 prósent frá fyrra ári en mannfjöldaaukning var tæplega tvö prósent á árinu. Heildartekjur heimilanna jukust árið 2024 um 8,1 prósent frá fyrra ári. Sá liður sem þyngst vegur í hækkun á heildartekjum heimilanna eru launatekjur sem áætlað er að þær hafi aukist um rúma 158 milljarða frá fyrra ári eða sem nemur 6,9 prósentum. Á sama tímabili jukust skattar á laun um rúma 45 milljarða eða um 6,9 prósent. Samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands hækkuðu laun að meðaltali um 6,6 prósent á árinu 2024 borið saman við fyrra ár en starfandi einstaklingum fjölgaði um 2,2 prósent á sama tímabili. Áætlað er að vaxtagjöld heimila hafi aukist um 10,1 prósent á árinu 2024 borið saman við fyrra ár. Á sama tímabili jukust eignatekjur heimila um 16,6 prósent. Áætlað er að lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur til heimilanna hafi aukist um tæpa 66 milljarða króna frá fyrra ári sem nemur um 11,6% aukningu á milli ára. Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur námu 15% af heildartekjum heimilanna árið 2024. Tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilisgeirans jukust um 3% á árinu 2024.
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira