Viðskipti erlent

Prada kaupir Versace á 183 milljarða króna

Atli Ísleifsson skrifar
Versace var stofnað árið 1978 af Ítalanum Gianni Versace.
Versace var stofnað árið 1978 af Ítalanum Gianni Versace. Getty

Ítalski tískurisinn Prada hefur keypt vörumerkið Versace úr höndum bandarískra eiganda fyrir 1,4 milljarða Bandaríkjadala, um 183 milljarða króna.

AP segir frá því að samkomulag hafi þannig náðst um kaupin á Versace milli Prada og bandaríska lúxusvörufyrirtækisins Capri Holdings.

Kaupin marka endalok bandarísks eignarhalds á Versace en Capri Holdings gekk frá kaupum á Versace árið 2018. Kaupverðið þá voru tveir milljarðar Bandaríkjadalir og er því ljóst að félagið er nú selt á umtalsvert lægri upphæð.

Capri Holdings á einnig vörumerkin Michael Kors og Jimmy Choo. AP segir frá því að Capri Holdings hafi átt í vandræðum með að staðsetja Versace á markaði í dag þar sem svokallaður „hljóðlátur lúxus“ (e. quiet luxury) nýtur sívaxandi vinsælda. Vörur Versace séu hins vegar taldar annað en „hljóðlátar“.

Versace var stofnað árið 1978 af Ítalanum Gianni Versace.

Greint var frá því í síðasta mánuði að Donatella Versace hefði ákveðið að stíga til hliðar sem listrænn stjórnandi Versace og að hún yrði nú alþjóðlegur sendiherra tískumerkisins. Hún hafði gegnt stöðunni síðan árið 1997 þegar bróðir hennar Gianni var myrtur.


Tengdar fréttir

Versace stígur til hliðar eftir áratugastarf

Donatella Versace stígur til hliðar sem listrænn stjórnandi Versace og verður nú alþjóðlegur sendiherra tískumerkisins. Hún hefur gegnt stöðunni síðan árið 1997 þegar bróðir hennar Gianni var myrtur og ber ábyrgð á gríðarlegri velgengni fyrirtækisins undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×