Íbúðin er í eigu listakonunnar Geirþrúðar Einarsdóttur, sem hefur innréttað hana af mikilli smekkvísi þar sem eldri húsgögn og nútímaleg hönnun renna saman og mynda fallega og hlýlega heild.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og tvær geymslur. Þá hefur húsið sjálft fengið gott viðhald á undanförnum árum. Við húsið er stór og snyrtilegur sameiginlegur garður.
Eldhús og stofa eru samliggjandi í opnu rými með gluggum í tvær áttir. Í alrýminu er ljósgrátt flotað gólf, sem gefur eigninni mikinn karakter. Eldhúsinnréttingin er nýleg, með góðu vinnuplássi og ljósum steini á borðum. Svört eldhústæki koma einstaklega vel út og samræmast heildarútliti rýmisins.
Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.




