Menning

Eitt merki­legasta verk 21. aldarinnar á Ís­landi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Kanónan Christian Marclay var að opna sýningu á Listasafni Íslands. Hér spjallar hann við Sigurð Gísla Pálmason á opnuninni.
Kanónan Christian Marclay var að opna sýningu á Listasafni Íslands. Hér spjallar hann við Sigurð Gísla Pálmason á opnuninni. Elísa B. Guðmundsdóttir

Svissnesk-bandaríski myndlistarmaðurinn Christian Marclay hefur komið víða að í listheiminum og þar á meðal unnið til verðlauna á virtu hátíðinni Feneyjartvíæringnum. Verk hans The Clock er af mörgum talið eitt merkasta listaverk 21. aldarinnar og er nú til sýnis á Listasafni Íslands.

Marclay mætti til landsins í lok apríl og var viðstaddur opnun sýningarinnar 2. maí síðastliðinn.

Í Reykjavík og New York

Í fréttatilkynningu segir: 

„Verkið The Clock er epískt, sólarhringslangt vídeóverk á einni rás með hljóði. The Clock hlaut Gullna ljónið á Feneyjatvíæringnum árið 2011 og er almennt talið eitt merkasta listaverk 21. aldarinnar. Verkið er bæði djúpstæð hugleiðing um tímann og virðingarvottur við sögu kvikmyndalistarinnar.“

Verkið hefur verið til sýnis víðs vegar um heim og er þar á meðal núna á dagskrá eins stærsta nútímalistasafns heims, MoMA í New York. Það er klippt saman úr mörg þúsund myndbrotum, ýmist svart hvítum eða í lit, sem Marclay safnaði á þriggja ára tímabili. 

„Hvert myndbrot skírskotar til ákveðinnar tímasetningar, hvort sem er í gegnum samtal eða með vísun í tímamæli, klukku, úr, stundaglas, sólúr eða blikkandi útvarpsvekjara sem í réttri tímaröð spannar heilan sólarhring, mínútu fyrir mínútu.“ 

„Epísk frásögn um mannlegt athæfi“

Vídeóið er stillt á staðartíma og er því sjálft tímamælir. Í The Clock er einnig hljóðmynd eftir Marclay þar sem hann notast við hrynjanda hljóða og tónlistar til að fylgjast með því hvað tímanum líður.

„Þau ótal augnablik sem skeytt er saman í verkinu mynda ekki heildræna frásögn. Þess í stað skapast nánast súrrealísk hughrif á meðan við fylgjumst með þeim atburðum sem eiga sér stað á þessum sólarhring. 

Segja má að The Clock sé epísk frásögn um mannlegt athæfi, framkölluð í gegnum linsu kvikmyndavélarinnar. Þetta er frásögn um þær sameiginlegu hversdagsathafnir okkar sem óhjákvæmilega leiða til tilviljanakenndra samfunda og óvæntra uppákoma,“ segir að sama skapi í fréttatilkynningu frá Listasafni Íslands.

Það var líf og fjör á opnun sýningarinnar en hér má sjá vel valdar myndir frá henni: 

Helena Reynisdóttir listakona og starfsmaður Listasafns Íslands.Elísa B. Guðmundsdóttir
Einar Geir Ingvarsson á spjalli.Elísa B. Guðmundsdóttir
Anna Clausen alltaf nett.Elísa B. Guðmundsdóttir
Kristín Jóhannesdóttir og Páll Stefánsson voru í góðu stuði.Elísa B. Guðmundsdóttir
Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.Elísa B. Guðmundsdóttir
Sólbjört Vera Ómarsdóttir, Una Björg Magnúsdóttir, Fritz Hendrik Berndsen IV og Freyja Ágústsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Christian Marclay spjallaði við gesti og gangandi.Elísa B. Guðmundsdóttir
Louise Hazell A Harris og Stephen William Lárus.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ófeigur Sigurðsson, Una Björg Magnúsdóttir, Sólbjört Vera Ómarsdóttir og Bjarki Bragason.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ófeigur Sigurðsson í góðum félagsskap.Elísa B. Guðmundsdóttir
Philippe Wojtowecz og Logi Leó Gunnarsson. Elísa B. Guðmundsdóttir
Úlfar Logason klappaði!Elísa B. Guðmundsdóttir
Níels Thibaud Girerd tók í hendi Loga.Elísa B. Guðmundsdóttir
Aude Busson.Elísa B. Guðmundsdóttir
María Margrét Jóhannsdóttir og Marta María Jónsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Logi Már Einarsson, Christian Marclay og Ingibjörg Jóhannsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Robert Currie Christian Marclay, Anne Carson.Elísa B. Guðmundsdóttir
Pari Stave og Sadie Cook.Elísa B. Guðmundsdóttir
Christian Marclay og Sigurður Gísli Pálmason.Elísa B. Guðmundsdóttir
Elísa B. Guðmundsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir.Listasafn Íslands

Á Listasafni Íslands eru tvær sólarhringslangar sýningar á The Clock. Sú fyrsta var á opnunarkvöldi sýningarinnar og næsta verður á sumarsólstöðum 22. júní og verður það jafnframt síðasti sýningardagurinn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.