Tíska og hönnun

Inn­sýn í framtíðarheim tískunnar á Ís­landi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör á útskrifarsýningu fatahönnunarnema frá LHÍ í gær.
Það var líf og fjör á útskrifarsýningu fatahönnunarnema frá LHÍ í gær. Skjáskot/Bjarni Einarsson

Á ári hverju gefst landsmönnum tækifæri til að gægjast inn í framtíðarstefnu og strauma tískunnar hérlendis þegar útskriftarnemar fatahönnunar við Listaháskóla Íslands setja upp glæsilega sýningu með því allra nýjasta úr sinni smiðju. Tökumaður Vísis var á staðnum og í pistlinum má sjá tískusýninguna í heild sinni. 

Fatahönnuðirnir eru Arnar Freyr Hjartarson, Guðlín Theódórsdóttir, Hallgerður Thorlacius, Hannes Hreimur Arason Nyysti, Íris Ólafsdóttir, Jóhannes Óðinsson, Kári Þór Barry, Klara Sigurðardóttir og Vilborg Björgvinsdóttir. Anna Clausen sýningarstýrði og Bjarni Einarsson sá um kvikmyndatöku.

Hér má sjá tískusýninguna: 

Klippa: Tískusýning útskriftarnema LHÍ í fatahönnun 2025

Á sýningunni kynna nemendur BA útskriftarverkefni sín frá Listaháskóla Íslands. Lokaverkefni nemenda í fatahönnun er einstaklingsverkefni sem samanstendur af frjálsri rannsókn, hönnun og gerð á línu af tískufatnaði undir handleiðslu leiðbeinenda. Framtíð fatahönnunar er gríðarlega spennandi og ljóst er að þessir nýju hönnuðir hika ekki við að fara frumlegar leiðir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.