Lífið

Stefán Einar keypti 145 milljón króna þak­í­búð

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stefán Einar Stefánsson er fastagestur í hlaðvarpinu Þjóðmálum og heldur úti vefþáttunum Spursmálum á vef Morgunblaðsins.
Stefán Einar Stefánsson er fastagestur í hlaðvarpinu Þjóðmálum og heldur úti vefþáttunum Spursmálum á vef Morgunblaðsins. Vísir/Vilhelm

Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson hefur fest kaup á glæsilegri þakíbúð í nýju fimm hæða fjölbýlishúsi við Lautargötu í Urriðaholti. Hann greiddi samkvæmt heimildum fréttastofu 144,9 milljónir fyrir eignina.

Nýverið var greint frá því að hann og sambýliskona hans, Sara Lind Guðbergsdóttir, hefðu sett parhús sitt við Mosugötu í Urriðaholti á sölu. Ásett verð þar er rétt rúmar 200 milljónir króna.

Stefán Einar starfar sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu og Sara Lind, sem er lögfræðimenntuð, gegnir starfi framkvæmdastjóra hjá Climeworks. Saman eiga þau tvo syni.

Þaksvalir og óskert útsýni

Þakíbúðin sem um ræðir er 133 fermetrar að stærð með 74 fermetra þaksvölum og sérbílastæði í kjallara. Útsýni úr íbúðinni er afar glæsilegt og nær meðal annars yfir Heiðmörkina, að Vífilstöðum og víðar.

Eignin skiptist í opið og bjart alrými, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Innanhúsarkitektinn Sólveig Andrea Jónsdóttir veitti ráðgjöf við val á innréttingum, gólfefnum og litum.


Tengdar fréttir

Stefán Einar og Sara Lind í sundur

Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og Sara Lind Guðbergsdóttir, framkvæmdastjóri Climeworks á Íslandi, hafa ákveðið að halda hvort í sína áttina eftir þrettán ára samband og ellefu ára hjónaband.

Stefán Einar sýknaður af kæru eins höfunda áramóta­skaupsins

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands sýknaði Stefán Einar Stefánsson, þáttastjórnanda á Morgunblaðinu, af kæru Salvarar Gullbrár Þórarinsdóttur, leikkonu, vegna ummæla sem hún taldi stríða gegn siðareglum blaðamanna. Stefán Einar neitaði sjálfur að viðurkenna að siðanefndin hefði lögsögu yfir honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.