Viðskipti innlent

Einar Bárðar­son tekur við fé­lagi veitinga­manna

Árni Sæberg skrifar
Einar Bárðarson er nýr framkvæmdastjóri SVEIT.
Einar Bárðarson er nýr framkvæmdastjóri SVEIT. Vísir/Vilhelm

Stjórn SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, hefur ráðið Einar Bárðarson í stöðu framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur formlega við starfinu 1. júní næstkomandi af Aðalgeiri Ásvaldssyni, sem hefur gegnt embættinu frá stofnun samtakanna árið 2021.

Í fréttatilkynningu frá SVEIT segir að Aðalgeir hafi tilkynnt brotthvarf sitt í vor og í kjölfarið hafi leit verið hafin að nýjum framkvæmdastjóra.

Var síðast hjá Votlendissjóði

Einar Bárðarson sé með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og búi yfir víðtækri reynslu af stjórnun og stefnumótun. Hann hafi síðast gengt starfi framkvæmdastjóra Votlendissjóðs, en hafi einnig starfað sem sjálfstæður ráðgjafi í stjórnunar- og markaðsmálum um árabil. Meðal verkefna hans síðustu ár hafi veruð stjórnarformennska Tónlistarmiðstöðvar Íslands og ráðgjöf fyrir Klúbb matreiðslumeistara og Íslenska kokkalandsliðið.

SVEIT séu hagsmunasamtök fyrirtækja á veitingamarkaði og starfi að því að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum, efla fagmennsku innan greinarinnar og miðla upplýsingum um málefni veitingageirans. Jafnframt veiti samtökin félagsmönnum þjónustu á sviði kjaramála og fari með samningsumboð fyrir greinina með það að markmiði að treysta og viðhalda samkeppnishæfum rekstrarskilyrðum.

Umdeilt félag

Óhætt er að segja að SVEIT hafi verið umdeilt undanfarin misseri vegna stéttarfélagsins Virðingar og ætlaðra tengsla SVEIT við félagið.

Stéttarfélagið Efling og SVEIT hafa eldað grátt silfur saman undanfarin misseri í tengslum við Virðingu sem Efling heldur fram að sé ekki raunverulegt stéttarfélag heldur framlenging á hagsmunum veitingahúsaeigenda.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Samkeppniseftirlitið sent út erindi á fjóra aðila þar sem farið er fram á að þeir skili ítarlegum gögnum til eftirlitsins um undirbúning, aðdraganda og samskipti vegna annars vegar stofnunar félagsins Virðingar, og hins vegar samninga Virðingar við SVEIT. Meðal þeirra er áðurnefndur Aðalgeir.


Tengdar fréttir

Mikil vonbrigði hjá Votlendissjóði og Einar hættir störfum

Stjórn Votlendissjóðs og framkvæmdastjóri hafa ákveðið að draga úr rekstri sjóðsins. Ástæðan er sögð skortur á jörðum til endurheimtar votlendis og áhrif krafna um vottun á fjármögnun verkefna. Þar til alþjóðleg vottun kolefniseininga sjóðsins er í höfn verður dregið úr rekstrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×