Handbolti

Þor­steinn Leó með fimm í mikil­vægum sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þorsteinn Leó Gunnarsson hefur leikið vel á sínu fyrsta tímabili með Porto.
Þorsteinn Leó Gunnarsson hefur leikið vel á sínu fyrsta tímabili með Porto. getty/Henrique Casinhas

Porto vann mikilvægan sigur á Benfica, 37-33, í úrslitariðli portúgölsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag.

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Porto sem er með 34 stig, líkt og Sporting sem á leik til góða gegn Maritimo á eftir.

Porto varð síðast meistari fyrir tveimur árum en í fyrra stóð Sporting uppi sem sigurvegari.

Stiven Tobar Valencia skoraði fjögur mörk fyrir Benfica sem er með 37 stig í 3. sæti úrslitariðilsins, sjö stigum á eftir Sporting og Porto.

Næsti leikur Porto er gegn Sporting á útivelli eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×