Viðskipti erlent

Flügger rann­sakað fyrir brot á við­skipta­þvingunum

Agnar Már Másson skrifar
Hér má sjá verksmiðju Flüggers í Póllandi en fyrirtækið rekur verslanir víða um evrópu, meðal annars sex slíkar á Íslandi.
Hér má sjá verksmiðju Flüggers í Póllandi en fyrirtækið rekur verslanir víða um evrópu, meðal annars sex slíkar á Íslandi. Flügger

Tveir hafa verið handteknir en látnir lausir eftir skýrslutöku þar sem danski málningarrisinn Flügger er sagður vera undir rannsókn vegna meintra brota á viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Flügger, sem rekur meðal annars sex verslanir á Íslandi, neitar sök og segist hafa yfirgefið Rússland fyrir löngu, en Rússi sem gefur sig út fyrir að vera talsmaður fyrirtækisins hefur selt málningu þeirra víða um landið síðustu ár.

Danska rannsóknarstofnunin NSK, sem kannar meðal annras fjárglæpi og skipulagða brotastarfsemi - oft köluð danska FBI - staðfestir í skriflegu svari til danska ríkisútvarpsins að hún sé að rannsaka mál um mögulegt brot á viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins gegn Rússlandi.

„NSK hefur í dag framkvæmt handtöku og húsleitaraðgerð í Kaupmannahöfn og í Vestegn í tengslum við mál sem varðar hugsanlega sniðgöngu dansks fyrirtækis á viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi,“ er haft eftir NSK í frétt DR, sem fullyrðir að danska málningarsamsteypan Flügger sé fyrirtækið sem um ræðir. NSK vildi þó ekki tjá sig um það. 

„Leitað hefur verið á þremur heimilisföngum og tveir hafa verið handteknir, sem báðir hafa verið látnir lausir eftir yfirheyrslur,“ skrifar NSK. Ekki er vitað hverjir hinir handteknu eru eða ekki hvort, og þá fyrir hvað, þeir hafi verið ákærðir, að sögn DR.

Staðfesta sjálf að þau séu til rannsóknar

Handtökurnar koma í kjölfar umfjöllunar DR frá því fyrr í morgun um að enn sé hægt að kaupa málningu frá Flügger víða í Rússlandi, þrátt fyrir að málningin hafi verið háð viðskiptaþvingunum ESB gegn Rússlandi í næstum þrjú ár.

Flügger staðfesti í yfirlýsingu til danska verðbréfamarkaðarins í dag að fyrirtækið og stjórnendur þess væru til rannsóknar hjá dönsku lögreglunni. Jafnframt er sagt að Flügger sé að vinna með yfirvöldum í málinu. 

„Við höfum yfirgefið Rússland og stefna okkar er mjög skýr að við viljum ekkert hafa með þann markað að gera. Þetta hefur einnig verið skýrt tilkynnt samstarfsaðilum okkar,“ segir í yfirlýsingunni.

Flügger segist löngu búinn að slíta sambandi við rússneska kaupmanninn

„Samt hefur einhver greinilega ákveðið að fara á bak við okkur og endurselja málningu í andstöðu við reglurnar. Þetta er algjörlega óásættanlegt og við gerum allt sem við getum til að stöðva það, “ er haft eftir Sune Schnack forstjóra Flüggergroup. 

Vísar hann þar til hins rússneska kaupsýslumannsins Aleksej Popov, sem var hann dreifingaraðili Flügger í Rússlandi í mörg ár. 

Flügger segir þó að þeim samningi hafi aftur á móti verið rift í apríl 2022. Síðan þá hefur hann þó haldið áfram að kynna sig sem fulltrúi Flüggers í landinu, samkvæmt DR.  Flügger segir við danska ríkismiðilinn að Popov hafi starfað alfarið einn og leitt danska samstæðuna „á bak við tjöldin“.

„Ég heiti Aleksej Popov og ég er fulltrúi danska Flügger í Rússlandi. Úrval okkar er breitt og inniheldur meira en 60 mismunandi vörunúmer, sem eru send hingað,“ sagði hann í viðtali í maí 2023, rúmu ári eftir að samningnum mun hafa verið rift.

Flügger segist gruna sérstaklega að framsala málningarnar til Rússlands hafi farið fram í gegnum einn eða fleiri dreifingaraðila og hafi því hætt samstarfi við dreifingaraðila í Kasakstan, Eistlandi, Aserbaídsjan og Kirgistan, segir í fréttatilkynningunni. Flügger segir við DR að Aleksej Popov hafi veitt sér tengiliði hjá öllum þeim dreifingaraðilaum.

Flügger hefur einnig upplýst DR um söluna í Rússlandi þegar fyrirtækið varð fyrst vart við. 

„Við fengum fyrirspurn frá uppljóstrara í lok árs 2024 og eftir það hófum við strax innri rannsókn í samstarfi við utanaðkomandi sérfræðinga til að komast til botns í málinu,“ sagði Flügger í tölvupósti til DR.

DR hefur reynt að fá athugasemd frá Aleksej Popov í nokkra daga. Þeim hefur tekist að ná stuttlega sambandi við rússneska kaupsýslumanninn í síma. Þar neitaði hann að hann væri að vinna með Flügger og sleit síðan fljótt sambandinu.

Íslenski armurinn alfarið í eigu Dana

Íslendingar þekkja Flügger vel, þá undir nafninu Flügger litir sem reka sex málningarverslanir á Íslandi. Fyrirtækið meðal vinsælustu málningaverslana hér á land og er rekið undir félaginu Flügger Iceland ehf.

Flügger á Íslandi er alfarið í eigu Flügger group A/S. Stjórnarformaður Flügger Iceland er Dani að nafni Torben Schwaner Delholm og aðeins einn annar er í stjórninni samkvæmt síðasta opinbera ársreikningi: Poul Erik Stockfleth. Framkvæmdastjóri Flügger er Rolf Gjølberg.

Fréttastofa hefur leitað viðbragða frá Flugger Iceland ehf. vegna málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×