Glatkistunni lokað Agnar Már Másson skrifar 30. júní 2025 12:09 Helgi Jónsson, ritstjóri Glatkistunnar, tók við heiðursverðlaunum Dags íslenskrar tónlistar árið 2023. Dagur íslenskrar tónlistar Glatkistunni, stærsta gagnagrunni sem er að finna um tónlistarlíf á Íslandi, verður lokað. Illa hefur gengið að fá auglýsendur til að styðja við verkefnið og styrkir frá hinu opinbera hafa verið fáir. Fleira efni mun ekki birtast á síðunni „nema auðvitað eitthvað stórkostlegt gerist,“ segir ritstjórinn.
Helgi Jónsson ritsjóri greinir frá þessu í tilkynningu á vef Glatkistunnar. Glatkistan hófst sem skrá utan um plötusafn Helga en vatt síðan upp á sig og varð að þeim gagnagrunni sem hún er í dag. Í kistunni eru um 6.000 greinar um tónlistarmenn, hljómsveitir, tónleikahús, plötur og í raun allt sem viðkemur íslenskri tónlist. Vefsíðan fær nú um 30 þúsund gesti á mánuði, að því er fram kemur í grein Helga sem hann birti í morgun. Hann skrifar að auglýsendur hafi ekki sýnt síðunni áhuga og að styrki frá hinu opinbera megi telja á fingrum annarrar handar. Fáeinir einstaklingar hafi þó styrkt framtakið með frjálsum framlögum. „Því er komið að lokakaflanum, tilraun til að fá Landsbókasafn og ráðuneyti menningarmála í einhvers konar samstarf hefur ekki gengið eftir, og því er lítið annað að gera en að „loka sjoppunni“ sem er pínu sorglegt þar sem hér er um að ræða stærsta gagnagrunn sem til er um íslenska tónlist,“ skrifar Helgi. Hann vonast þó eftir því að Glatkistan verði aðgengileg eitthvað áfram ef framlög koma inn til að greiða fyrir lén og hýsingu síðunnar. Frekara efni yrði ólíklega birt á síðunni frá þessum tímapunkti, fyrir utan það efni sem nú þegar liggur tilbúið til birtingar, „nema auðvitað eitthvað stórkostlegt gerist,“ bætir hann við. „Það stoðar lítið að gráta þótt efnið (og það sem liggur eftir hálf- og óunnið) hverfi nú „í glatkistuna“ en ég vil þess í stað þakka þeim fjölmörgu sem hafa lagt lið við efnisöflun, ábendingar, leiðréttingar, myndefni og annað, og þeim lesendum sem hafa heimsótt vefinn og nýtt sér hann til fróðleiks, í námi eða til skemmtunar. Ég fer sáttur frá borði og get eytt frímtíma mínum í önnur hugðarefni,“ skrifar Helgi og bætir við: „Takk fyrir mig.“ Ekki hefur náðst í Helga Jónsson, ritstjóra Glatkistunnar, við vinnslu fréttar.
Tónlist Tímamót Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Fleiri fréttir Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Sjá meira