Real Madrid afgreiddi Dortmund að mestu í fyrri hálfleik Siggeir Ævarsson skrifar 5. júlí 2025 22:04 Fran Garcia fagnar marki sínu í kvöld Vísir/Getty Real Madrid er komið í undanúrslit heimsmeistaramóts félagsliða eftir 3-2 sigur á Dortmund í kvöld.
Þeir Gonzalo Garcia og Fran Garcia komu Real í 2-0 með mörkum á 10. og 20. mínútu og lengi vel leit út fyrir að það yrði einu mörk leiksins. Dortmund komst lítt áleiðis gegn þéttri miðju Madrídinga en í uppbótartíma seinni hálfleiks dró heldur betur til tíðinda. Fimm mínútum var bætt við og varamaðurinn Maximilian Beier minnkaði muninn í 2-1 á 93. mínútu. Annar varmaður, Kylian Mbappe, svaraði þó fljótt með glæsilegu marki og staðan orðin 3-1 með 94 mínútur á klukkunni og öruggur sigur Real Madrid virtist í höfn. Dramatíkinni lauk þó ekki þar heldur fékk Dortmund vítaspyrnu og Dean Huijsen rautt spjald. Serhou Guirassy skoraði af öryggi úr spyrnunni en þá voru komnar 98 mínútur á klukkuna og tíminn hlaupinn frá Þjóðverjum. Lokatölur 3-2 en sigur Real engu að síður nokkuð þægilegur og þannig séð öruggur þrátt fyrir smá hasar í uppbótartíma. Real Madrid mætir PSG í undanúrslitum þann 9. júlí næstkomandi.
HM félagsliða í fótbolta 2025 Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Fleiri fréttir Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Sjá meira