Viðskipti innlent

„Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“

Árni Sæberg skrifar
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka.
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink

Bankastjóri Íslandsbanka segir mikil vonbrigði að stjórn Kviku hafi ákveðið að ganga til samrunaviðræðna við Arion banka frekar en Íslandsbanka. Í tölvubréfi til starfsmanna segir hann að bankinn hafi teygt sig eins langt og hann gat í tilboði sínu en að sem betur fer séu fleiri fiskar í sjónum en Kvika.

Líkt og greint var frá í gær hefur stjórn Kviku banka samþykkt að verða við beiðni stjórnar Arion banka um að hefja formlegar samrunaviðræður milli bankanna, og hefur viljayfirlýsing þess efnis verið undirrituð af hálfu beggja aðila.

Beiðni stjórnar Arion banka um samrunaviðræður barst síðdegis á föstudag, á sama tíma og sams konar beiðni Íslandsbanka barst.

Arion bauð betur

Samhliða því að Íslandsbanki sendi tilkynningu til Kauphallar um að Kvika hefði hafnað beiðni bankans sendi Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka tölvubréf til starfsmanna.

„Líkt og tilkynningar frá því á föstudaginn báru með sér sýndum bæði við og Arion áhuga og er þetta niðurstaðan. Að okkur skilst byggir ákvörðun Kviku fyrst og fremst á að Arion hafi boðið hærra verð. Við teygðum okkur eins langt í verði og við töldum hyggilegt útfrá hagsmunum hluthafa bankans og var það byggt á bjartsýnum forsendum um bæði vöxt og samlegðaráhrif,“ segir Jón Guðni.

Niðurstaðan vonbrigði

Hann segir niðurstöðu Kviku vissulega vera vonbriðgið, enda hafi starfsmenn bankans lagt mikla vinnu í að greina tækifærið og möguleg samlegðaráhrif, sem samruni við Kviku hefði haft í för með sér.

„En sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum og mörg önnur tækifæri sem við höfum og munum huga að - bæði hvað varðar innri og ytri vöxt , hérlendis og erlendis. Margt spennandi að skoða þar. Ég vona að þið hafið notið veðurblíðunnar um helgina og nú fer heldur að hægjast á vegna sumarfría. Það er þó törn þessa dagana hjá fjárhagsdeild, áhættustýringu og öðrum sem vinna við uppgjör bankans fyrir annan ársfjórðung, sem verður birt 31. júlí.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×