Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. september 2025 20:55 Gísli Þorgeir fagnar. Marius Becker/Getty Images Ómar Ingi Magnússon var markahæstur og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sigurmarkið í 22-21 sigri Magdeburg gegn Barcelona á útivelli í Meistaradeildinni.
Lítið var skorað í leiknum en spennan varð þeim mun meiri milli þessara stórliða sem mættust síðast í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í vor. Magdeburg sýndi frumkvæði og leiddi tveimur eða þremur mörkum mest allan leikinn, en Börsungar voru aldrei langt undan og jöfnuðu þegar minna en fimm mínútur voru eftir. Gísli Þorgeir Kristjánsson tók sig þá til og kom Magdeburg aftur yfir, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Meira var ekki skorað þrátt fyrir nokkrar tilraunir til viðbótar hjá báðum liðum og reyndist það sigurmarkið. Gísli skoraði þrjú mörk úr sjö skotum en Ómar Ingi Magnússon var markahæstur hjá Magdeburg með sex mörk úr tíu skotum. Elvar Örn Jónsson tók eitt skot en skoraði ekki. Ómar Ingi átti virkilega góðan leik.Javier Borrego/Getty Images Viktor Gísli Hallgrímsson er markmaður Barcelona en hinn danski Emil Nielsen er ofar í goggunarröðinni. Viktor varði eitt af tveimur skotum sem hann fékk á sig í kvöld. Magdeburg er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í Meistaradeildinni.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira