Golf

Banda­ríkin með bakið upp við vegg

Sindri Sverrisson skrifar
Rory McIlroy og Tommy Fleetwood eru að gera frábæra hluti í Ryder-bikarnum í New York.
Rory McIlroy og Tommy Fleetwood eru að gera frábæra hluti í Ryder-bikarnum í New York. Getty/Jamie Squire

Evrópa vann 3-1 í fjórmenningi dagsins í Ryder-bikarnum í golfi í New York og er komin með fimm vinninga forskot á Bandaríkin fyrir fjórboltann nú síðdegis.

Keppni í fjórboltanum var að hefjast og ljóst að Bandaríkjamenn verða að fara að svara fyrir sig í leikjunum fjórum þar svo að brekkan verði ekki of brött fyrir tvímenninginn á morgun. Evrópa er núna með 8 og hálfan vinning gegn 3 og hálfum hjá Banda´rikjunum.

Bryson DeChambeau og Cameron Young voru þeir einu úr liði Bandaríkjanna sem náðu að vinna í dag, gegn Matt Fitzpatrick og Ludvig Åberg, 4/2.

Aðrir leikir enduðu með sigri Evrópu en mesta spennan var í leik Robert MacIntyre og Viktors Hovland við Russell Henley og Scottie Scheffler, efsta mann heimslistans. Sá leikur hélt áfram fram á síðustu holu en Evrópuparið sýndi stáltaugar og fagnaði sigri.

Tyrrell Hatton og Jon Rahm hafa enn ekki upplifað að tapa í fjórmenningi og þeir unnu Xander Schauffele og Patrick Cantlay, 3/2. Rory McIlroy og Tommy Fleetwood héldu svo áfram að vera í stuði og unnu Harris English og Collin Morikawa, 3/2.

Ryder-bikarinn er allur í beinni útsendingu á Sýn Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×