Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. nóvember 2025 16:33 Forsvarsmenn Ferðamálastofu og Tango Travel eru ekki á eitt sáttir um útborgun trygginga. Vísir/Anton Brink Ferðamálastofa segir farþega eiga að beina kröfum sínum að ferðaskrifstofunni Tango Travel hafi ferðum þeirra verið aflýst enda sé ferðaskristofan starfandi og ekki gjaldþrota. Tango Travel segir Ferðamálastofu afbaka lögin og fara fram með meiðandi hætti. Tango Travel tilkynnti á laugardagsmorgun að stafsemi hefði verið hætt í núverandi mynd og kenndi um óvænt gjaldþrot flugfélagsins Play. Einn eigandi ferðaskrifstofunnar sagði mikið fjármagn hafa farið í að bregðast við tíðindunum til að standa sín plygt gagnvart kúnnum sínum. Bragi Hinrik Magnússon, einn eiganda ferðaskrifstofunnar, sagði fjölda farþega eiga bókaðar ferðir með ferðaskrifstofunni. Verkefnastaðan hafi verið frábær fram í tímann en ósanngjarnt væri að ferðaskrifstofur þyrftu að endurgreiða ferðir innan fjórtán daga. Það þýði að tugmilljónir króna séu handveðsettar Ferðamálastofu sem nýtist þá ekki ferðaskrifstofum í kröggum. Forsvarsmenn Tango hafi haft rangt við Í tilkynningu á vef sínum bregst Ferðamálastofa við tíðindum af Tango Travel. Segir stofan að kjósi ferðaskrifstofa að hætta rekstri án þess að fara fram á gjaldþrotaskipti þurfi hún að aflýsa ferðum viðskiptavina og endurgreiða þeim þær. „Þannig að á meðan félagið er enn starfandi og hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota eiga farþegarnir að beina kröfum sínum til félagsins, ekki til Ferðatryggingasjóðs,“ segir í tilkynningunni. Það sama eigi við um pakkaferðir, það sé ferðaskrifstofan sem beri ábyrgð á að endurgreiða ferðina. „Ef ferðaskrifstofa verður gjaldþrota eða leggur fram opinbera staðfestingu um að hún sé ógjaldfær birtir Ferðamálastofa skýrar leiðbeiningar hér á vefnum um hvernig hægt er að sækja um endurgreiðslu í gegnum Ferðatryggingasjóð. Ferðatryggingasjóður endurgreiðir m.ö.o. ekki þegar ferð fellur niður nema ferðaskrifstofan hafi í raun hætt starfsemi vegna gjaldþrots og leyfið fellt niður í kjölfarið. Upplýsingar um annað eru því ekki réttar.“ Þá segist Ferðamálastofa vilja benda á að það sé rangt sem hafi komið fram í viðtali við forsvarsmann Tango Travel í hádegisfréttum Bylgjunnar á laugardag að það hafi verið Ferðamálastofa og ferðamálaráðherra sem hafi veitt ferðaskrifstofunni fjórtán daga frest til að endurgreiða frest. Hið rétta sé að um sé að ræða lögbundinn frest samkvæmt lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Þá bendir Ferðamálastofa neytendum á að kanna rétt sinn til endurgreiðslu hjá kreditkortafyrirtækjum auk þess sem þeim er bent á kærunefnd vöru og þjónustu. Ferðamálastofa flækist fyrir Í svari Tango Travel til fréttastofu vegna tilkynningar Ferðamálastofu segir að reglum um endurgreiðslur hafi ekki verið ætlað að taka mið af því þegar helmingur farþegaflugfélaga á Íslandi far í gjaldþrot og skilji eftir sig holu sem erfitt sé fyrir markaðinn að eiga við. „Í raun mætti skoða þetta sem Force majeure atvik. Auk þess höfðu stjórnvöld eftirlitsskyldu sjálf með flugfélaginu og voru í gegnum ráðgjafafyrirtæki nýlega búin að gefa það út að flugfélagið væri öruggt um næstu framtíð, skv. upplýsingum frá Eyjólfi Ármannsyni innviðaráðherra.“ Með það í huga segja forsvarsmenn Tango Travel að Ferðamálastofa gæti með auðveldum hætti komið til móts við ferðaskrifstofur og ýtt þeim í gegnum þann skafl sem þær séu nú í. Skafl sem ferðaskrifstofur hafi átt engan þátt í að skapa og eiga enga sök að máli. Eini glæpur þeirra, að því er segir í svari Tango, hafi verið að versla við íslenskt flugfélag sem var undir eftirliti íslenskra stjórnvalda. Svörin meiðandi Þá vísa forsvarsmenn Tango Travel með beinum hætti í yfirlýsingu Ferðamálastofu, þar sem vísað er til þess að kjósi ferðaskrifstofa að hætta rekstri án þess að fara fram á gjaldþrotaskipti þurfi hún að aflýsa ferðum viðskiptavina og endurgreiða þeim. Meðan félagið sé enn starfandi eigi viðskiptavinir því að beina kröfum þangað. „Þessi setning er bæði röng og orðalag hannar meiðandi. Í fyrsta lagi þá er ógjaldfærni og gjaldþrot ekki sami hluturinn þótt Ferðamálastofa stilli því þannig upp. Það er ekki gerð krafa í lögum um það að ferðaskrifstofa verði að fara fram á eigið gjaldþrot til þess að greitt sé úr tryggingasjóðnum, það eru aðrir mjög skýrir möguleikar,“ segir í svari Tango. „Einnig er það ekki svo að Tango Travel kjósi að hætta rekstri eins og það sé eitthvað val um það. Ferðaskrifstofan Tango Travel er neydd til þess að stöðva rekstur vegna þess að sá peningur sem félagið hafði undir höndum hefur allur farið í það að bjarga viðskiptavinum heim sem voru erlendis þegar fall flugfélagsins átti sér stað og að standa við þær ferðir þar sem stutt var í brottför enda búið að greiða allan kostnað erlendis vegna gistingar, viðburða, rútuferða o.s.frv. Að klára ekki slík verkefni hefði ollið mun meiri fjárhagslegum skaða ef ekki hefði verið ráðist í þær aðgerðir.“ Þá vísa forsvarsmenn Tango til orða Ferðamálastofu um að ferðatryggingasjóður endurgreiði ekki ferð nema ferðaskrifstofan hafi hætt starfsemi vegna gjaldþrots og leyfið fellt niður í kjölfarið. „Hér má aftur sjá hvernig Ferðamálastofa afbakar lögin og reynir enn og aftur að halda því fram að gjaldþrot sé eina leiðin. Þetta er rangt og skv. lögum dugir ógjaldfærni og einnig hefur Ferðamálastofa hefur sjálf heimildir til að fella niður ferðaskrifstofuleyfið og virkja tryggingar.“ Tango Travel geti ekki gert meira Forsvarsmenn Tango Travel segja Ferðamálastofu tvísaga hvað varðar niðurfellingu á ferðaskrifstofuleyfinu. Ferðamálastofu hafi sagt að sér sé heimilt að fella niður ferðaskrifstofuleyfi Tango Travel og hefja útgreiðslur úr tryggingum ef Tango hafi ekki sinnt sínum lögbundnu skyldum. „En ekki bara vegna vanskila á greiðslu gjalda. Samkvæmt þessu getur Ferðamálastofa svipt Tango Travel ferðaskrifstofuleyfi sínu strax í dag og hætt að flækja málin og greitt farþegum úr tryggingum Tango Travel og eftir atvikum úr Ferðatryggingasjóði ef þörf krefur, enda er Tango Travel ekki að ná að uppfylla sínar lögbundnu skyldur, þ.e. að standa við pakkaferðir viðskiptavina sinna.“ Segir í svörum Tango Travel að fyrirtækið sé hætt rekstri og sé ógjaldfært. „Tango Travel getur ekki gert neitt meira, það ætti að vera ljóst. Einnig benda þeir neytendum að ræða við Kærunefnd vöru og þjónustu. Hvað eiga þeir að gera ? Það stendur ekki neinn ágreiningur um rétt fólksins til að fá sínar ferðir endurgreiddar! Sá réttur er ótvíræður og lögbundinn. Með þessu gerir Ferðamálastofa ekkert nema að flækja málin fyrir neytendum og skapa óvissu og óþægindi fyrir alla aðila. Þeir vita alveg að ferðaskrifstofutryggingarnar eiga að taka á þessu og það er lélegt að afvegaleiða saklaust fólk.“ Allir fái endurgreitt Tango Travel hafi fengið fjölda tölvupósta í kjölfar yfirlýsingar Ferðamálaskrifstofu, frá fólki sem haldi að það sé að missa peninginn sinn og líði mjög villa. Fullyrt er í svari Tango að allir muni fá endurgreitt vegna ferða sem ekki eru farnar. „Höfum þetta alveg á hreinu, allir munu fá endurgreitt vegna ferða sem ekki eru farnar. Þeir munu fá endurgreitt frá Ferðamálastofu alveg sama hvað þau raula eða tauta. Það er bara skýrt í lögunum og það þýðir ekkert fyrir Ferðamálastofu að benda í allar áttir og afvegaleiða fólk.“ Segir ennfremur að eðlilegast væri ef kortafyrirtækin myndu vísa kröfum aftur til Ferðamálastofu enda séu tryggingar til staðar sem eigi að taka á þessu. „Gott er að minnast á það að þetta er ekki bara tryggingasjóðurinn sem um ræðir heldur á Tango Travel (eða réttara sagt viðskiptavinir þess) tugi milljóna inni á reikningi handveðsettum Ferðamálastofu sem þau liggja núna á eins og ormur á gulli og benda viðskiptavinum sem eiga rétt á þessum peningum að leita í allar aðrar áttir en til Ferðamálstofu sjálfrar, sem á skv. lögum að losa þennan pening til neytenda.“ Hvetja forsvarsmenn Tango Travel Ferðamálastofu til að sýna leiðtogahæfni á þessum erfiðu tímum fyrir margar ferðaskrifstofur og stíga fram með lausnir í stað þess að flækja málin og búa til vandamál. „Eigendur ferðaskrifstofa hafa nú þegar þurft að grípa til uppsagna á starfsfólki, þurft að veðsetja heimilin sín og taka önnur lán til að standa undir þessu fjárhagslega áfalli. Þetta er ekki eðlileg staða og ekki réttlát staða á nokkurn hátt. Ferðamálastofa hefur öll verkfæri sem þau þurfa til þess að standa sig miklu betur og getur innan lagarammans bæði virkjað tryggingar fyrir viðskiptavini Tango Travel og það sem væri enn betra, veitt lán úr sjóðnum til að dreifa úr áfallinu, greiða strax til neytenda og þannig varið hagsmuni sjóðsins með því að eiga góðar líkur á að fá peninginn aftur inn frekar en að missa hann út endanlega.“ Svar Tango Travel vegna tilkynningar Ferðamálastofu sem birtist á vefsíðu þeirra dagsettri 1. október 2025. Tilgangur Ferðamálastofu í svona málum er augljós. Ferðaskrifstofur liggja inni með tryggingar auk þess sem þær greiða iðgjald í Ferðatryggingasjóð. Ef aðstæður koma upp á markaði þar sem ferðaskrifstofu er ekki unnt að standa undir skuldbindingum sínum þá eiga viðskiptavinir skýlausan rétt á greiðslu úr sjóðnum vegna ófarinna pakkaferða. Það má færa sterk rök fyrir því að þessum reglum var ekki ætlað að taka á því þegar helmingur af öllum farþegaflugfélögum á Íslandi fer í gjaldþrot og skilur eftir sig holu sem er erfitt fyrir markaðinn í heild að eiga við. Í raun mætti skoða þetta sem Force majeure atvik. Auk þess höfðu stjórnvöld eftirlitsskyldu sjálf með flugfélaginu og voru í gegnum ráðgjafafyrirtæki nýlega búin að gefa það út að flugfélagið væri öruggt um næstu framtíð, skv. upplýsingum frá Eyjólfi Ármannsyni innviðaráðherra. Með þetta í huga gæti Ferðamálastofa með auðveldum hætti komið til móts við ferðaskrifstofur og ýtt þeim í gegnum þennan skafl, skafl sem ferðaskrifstofur áttu engan þátt í að skapa og eiga enga sök að máli. Eini glæpur þeirra er að hafa verslað við íslenskt flugfélag sem var undir eftirliti íslenskra stjórnvalda. Varðandi gjaldþrot eða ekki gjaldþrot og vilja Ferðamálastofu að standa við eigin skuldbindingar… Með tilkynningu sinni sem birt var á vefsíðu Ferðamálastofu 1. nóv 2025 segir Ferðamálastofa orðrétt: “Kjósi ferðaskrifstofa að hætta rekstri, án þess að hún fari fram á gjaldþrotaskipti, þarf ferðaskrifstofa að aflýsa ferðum viðskiptavina sinna og endurgreiða þeim þær. Þannig að á meðan félagið er enn starfandi og hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota eiga farþegarnir að beina kröfum sínum til félagsins, ekki til Ferðatryggingasjóðs.” - Þessi setning er bæði röng og orðalag hannar meiðandi. Í fyrsta lagi þá er ógjaldfærni og gjaldþrot ekki sami hluturinn þótt Ferðamálastofa stilli því þannig upp. Það er ekki gerð krafa í lögum um það að ferðaskrifstofa verði að fara fram á eigið gjaldþrot til þess að greitt sé úr tryggingasjóðnum, það eru aðrir mjög skýrir möguleikar. Einnig er það ekki svo að Tango Travel kjósi að hætta rekstri eins og það sé eitthvað val um það. Ferðaskrifstofan Tango Travel er neydd til þess að stöðva rekstur vegna þess að sá peningur sem félagið hafði undir höndum hefur allur farið í það að bjarga viðskiptavinum heim sem voru erlendis þegar fall flugfélagsins átti sér stað og að standa við þær ferðir þar sem stutt var í brottför enda búið að greiða allan kostnað erlendis vegna gistingar, viðburða, rútuferða o.s.frv. Að klára ekki slík verkefni hefði ollið mun meiri fjárhagslegum skaða ef ekki hefði verið ráðist í þær aðgerðir. Ferðamálastofa segir einnig neðar í sömu grein: “Ferðatryggingasjóður endurgreiðir m.ö.o. ekki þegar ferð fellur niður nema ferðaskrifstofan hafi í raun hætt starfsemi vegna gjaldþrots og leyfið fellt niður í kjölfarið. Upplýsingar um annað eru því ekki réttar.” - Hér má aftur sjá hvernig Ferðamálastofa afbakar lögin og reynir enn og aftur að halda því fram að gjaldþrot sé eina leiðin. Þetta er rangt og skv. lögum dugir ógjaldfærni og einnig hefur Ferðamálastofa heimildir sjálf til að fella niður ferðaskrifstofuleyfið og virkja tryggingar. Ferðamálastofa er semsagt tvísaga hvað varðar niðurfellingu á ferðaskrifstofuleyfinu. Í umræddri grein segir hún eftirfarandi: “Ferðatryggingasjóður endurgreiðir aðeins greiðslur, sem ferðamenn hafa greitt fyrir pakkaferðir, ef ferðaskrifstofa verður ógjaldfær/gjaldþrota, eða ef ferðaskrifstofuleyfið er fellt niður að frumkvæði Ferðamálastofu vegna vanskila ferðaskrifstofu á greiðslu gjalda í Ferðatryggingasjóð eða ákvörðuð trygging ferðaskrifstofu hefur ekki verið lögð fram.” - Síðan á öðrum stað á vefsíðu sinni, í kafla sem heitir Útgreiðslur, undir Ferðatryggingasjóði, segir eftirfarandi: “Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar, sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning, óháð fjárhæð tryggingar sem viðkomandi seljandi lagði fram, komi til ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda eða ef leyfi hans er fellt niður vegna vanefnda á lögbundnum skyldum”- Þarna kemur fram að Ferðamálastofu sé heimilt að fella niður ferðaskrifstofuleyfi Tango Travel og hefja útgreiðslur úr tryggingum ef Tango hefur ekki sinnt sínum lögbundnu skyldum… en ekki bara vegna vanskila á greiðslu gjalda. Samkvæmt þessu getur Ferðamálastofa svipt Tango Travel ferðaskrifstofuleyfi sínu strax í dag og hætt að flækja málin og greitt farþegum úr tryggingum Tango Travel og eftir atvikum úr Ferðatryggingasjóði ef þörf krefur, enda er Tango Travel ekki að ná að uppfylla sínar lögbundnu skyldur, þ.e. að standa við pakkaferðir viðskiptavina sinna. Þá bendir Ferðamálastofa neytendum á að leita til Tango Travel með sín mál. Tango Travel hefur hætt rekstri og er ógjaldfært, Tango Travel getur ekki gert neitt meira, það ætti að vera ljóst. Einnig benda þeir neytendum að ræða við Kærunefnd vöru og þjónustu. Hvað eiga þeir að gera ? Það stendur ekki neinn ágreiningur um rétt fólksins til að fá sínar ferðir endurgreiddar! Sá réttur er ótvíræður og lögbundinn. Með þessu gerir Ferðamálastofa ekkert nema að flækja málin fyrir neytendum og skapa óvissu og óþægindi fyrir alla aðila. Þeir vita alveg að ferðaskrifstofutryggingarnar eiga að taka á þessu og það er lélegt að afvegaleiða saklaust fólk. Tango Travel hefur fengið fjölda tölvupósta í kjölfarið á þessum skilaboðum frá Ferðamálastofu, frá fólki sem heldur nú að það sé að missa peninginn sinn og líður mjög illa. Höfum þetta alveg á hreinu, allir munu fá endurgreitt vegna ferða sem ekki eru farnar. Þeir munu fá endurgreitt frá Ferðamálastofu alveg sama hvað þau raula eða tauta. Það er bara skýrt í lögunum og það þýðir ekkert fyrir Ferðamálastofu að benda í allar áttir og afvegaleiða fólk. Einnig benda þeir á kortafyrirtækin. Það er áhugavert að skoða þann punkt. Ekkert er tekið fram í lögum eða reglugerðum að kortafyrirtæki eigi að greiða til viðskiptavina á undan ferðaskrifstofutryggingunum sjálfum, sem eru sérstaklega hannaðar til þess að gera einmitt það. Það er einnig óljóst hvort kortafyrirtækin eigi í kjölfarið kröfurétt á ferðatryggingasjóð og eru þá tryggir með sínar endurgreiðslur eða hvort þeir eigi bara almennan kröfurétt í félagið sjálft. Þetta er mikilvægt vegna þess að það væri óráðlegt fyrir kortafyrirtækin að taka á sig það fjárhagslega tap ef þeir eiga ekki rétt á kröfu í sjóðinn. Eðlilegast væri fyrir kortafyrirtækin að vísa þessu aftur til Ferðamálastofu enda eru tryggingarnar þar til staðar sem eiga að taka á þessu. Gott er að minnast á það að þetta er ekki bara tryggingasjóðurinn sem um ræðir heldur á Tango Travel (eða réttara sagt viðskiptavinir þess) tugi milljóna inni á reikningi handveðsettum Ferðamálastofu sem þau liggja núna á eins og ormur á gulli og benda viðskiptavinum sem eiga rétt á þessum peningum að leita í allar aðrar áttir en til Ferðamálstofu sjálfrar, sem á skv. lögum að losa þennan pening til neytenda. Mikið væri gott ef Ferðamálastofa myndi núna sýna leiðtogahæfni á þessum erfiðum tímum fyrir margar ferðaskrifstofur og stíga fram með lausnir í stað þess að flækja málin og búa til vandamál. Hér á málið ekki að snúast um einhverja sýndar hörku í garð fórnalamba gjaldþrots flugfélags heldur að ýta þeim í gegnum skaflinn og stuðla að heilbrigðu og sterku umhverfi í ferðaþjónustunni. Eins og Tango Travel hafa fjölmargar aðrar ferðaskrifstofur þurft að verja öllu sínu lausafé í að bjarga sínum farþegum og höfum við séð nokkrar fréttir þess efnis í fjölmiðlum. Eigendur ferðaskrifstofa hafa nú þegar þurft að grípa til uppsagna á starfsfólki, þurft að veðsetja heimilin sín og taka önnur lán til að standa undir þessu fjárhagslega áfalli. Þetta er ekki eðlileg staða og ekki réttlát staða á nokkurn hátt. Ferðamálastofa hefur öll verkfæri sem þau þurfa til þess að standa sig miklu betur og getur innan lagarammans bæði virkjað tryggingar fyrir viðskiptavini Tango Travel og það sem væri enn betra, veitt lán úr sjóðnum til að dreifa úr áfallinu, greiða strax til neytenda og þannig varið hagsmuni sjóðsins með því að eiga góðar líkur á að fá peninginn aftur inn frekar en að missa hann út endanlega. Fyrir þá sem hafa áhuga á nánari lagalegri útfærslu á láni úr sjóðnum þá er hér fyrir neðan hugmynd sem lögfræðingur Félags Atvinnurekenda hefur þegar sett fram til fulltrúa Ferðamálastofu og Atvinnuvegaráðuneytisins. Þau hafa ekki enn, þegar þetta er ritað, slegið þetta út af borðinu en þó hefur Ferðamálastofa sjálf beitt sér harkalega gegn þessu þótt fulltrúar Ráðuneytisins virðast enn hafa áhuga á að leysa málin. Með þessari leið bjargast mikil verðmæti, mikilvæg störf og þá er aðkallandi út frá meðalhófsreglu að henni sé beitt enda krafa um gjaldþrot algerlega andstæð þeim markmiðum og úr öllu hófi á meðan önnur og vægari úrræði þjóna markmiðunum mun betur og með minni skaðsemi fyrir þá sem hlut eiga að máli. Tillaga lögfræðings Félags Atvinnurekenda: „Fyrir hendi er í ákveðnum tilfellum tímabundin ógjaldfærni sem kemur til vegna þess að ferðaskrifstofurnar hafa móttekið fjármuni frá ferðamanni og greitt fyrir ferð hans til þriðja aðila (Play o.fl.). Ferðamaðurinn á rétt á endurgreiðslu frá ferðaskrifstofunni en ferðaskrifstofan fær enga endurgreiðslu frá þriðja aðila. Til að vinna bug á þessu þarf ferðaskrifstofan smá svigrúm enda ógjaldfærni hennar aðeins tímabundin. Við þessar aðstæður hefur Ferðatrygginasjóður heimild til að greiða ferðamanninum beint sbr.: 26. gr. [Tryggingavernd. Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning og annast heimflutning ferðamanns sé farþegaflutningur hluti pakkaferðar, komi til ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda eða ef leyfi hans er fellt niður skv. 27. gr. Greiðsluskylda er til staðar hvort sem endanlegur samningur um pakkaferð hefur komist á eða ekki, enda sé sýnt fram á greiðslu með fullnægjandi hætti. Í framhaldi hefur Ferðatryggingasjóður heimild til að innheimta kröfuna á hendur viðkomandi ferðaskrifstofu: [26. gr. a. Endurkröfuréttur o.fl. Við greiðslu til ferðamanns úr Ferðatryggingasjóði stofnast krafa sjóðsins á hendur viðkomandi seljandaeða þrotabúi hans. Ferðatryggingasjóði er heimilt að ganga að tryggingu seljanda skv. 25. gr. a til fullnustu kröfu sem stofnast hefur á hendur seljanda eða þrotabúi hans. Komi til gjaldþrots seljanda nýtur krafa sjóðsins, sem ekki hefur fengist greidd að fullu af tryggingu seljanda, rétthæðar í samræmi við 1. mgr. 112. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, við gjaldþrotaskiptin. Heimildin til að gera þetta er augljós enda kemur skýrt fram að skilyrði fyrir greiðslu sé ógjaldfærni (má vera tímabundin) og beinlínis sagt að heimilt sé að gera endurkröfu á seljanda eða þrotabús hans en í því fellst seljandinn getur skv. lögunum verið gjaldfær síðar og þarf ekki að hafa verið tekinn til skipta. Þessi vegferð hefur augljóslega ekki fordæmisgildi utan þess þegar að stórt innlent flugfélag verður gjaldþrota og er auk þess í samræmi við meðalhófsreglu. Það sem er ekki í samræmi við meðalhófsreglu er að fara fram á að fyrirtæki (sem hefðu náð að leysa úr tímabundnum vanda sínum) séu gerð gjaldþrota áður en að greiðsla úr sjóðnum fer fram (auk þess sem að sú lögskýring er andstæð sjálfum texta laganna). Ég legg það til að Ferðatryggingasjóður hefjist strax handa við að greiða umræddar kröfur vegna þeirra sem telja sig tímabundið ógjaldfæra. Þetta leiðir af sér eftirfarandi: Slíkt bjargar fjölda góðra fyrirtækja frá gjaldþroti vegna atvika sem þau eiga enga sök á Það ver hagsmuni neytenda og trúverðuleika markaðarins Þetta ver frekar stöðu Ferðatryggingasjóðs sem mun eignast kröfur á félög í rekstri í stað þess að eignast kröfur í þrotabú. „ Endir á tillögu lögfræðings Félags Atvinnurekenda. Að lokum, Það er gríðarlega mikilvægt að þegar yfir samfélaginu dynur stóráfall eins og gjaldþrot annars af tveimur flugfélögum á landinu að við snúum öll bökum saman. Neytendur, ferðaskrifstofur, Ferðamálastofa, Ráðuneytin og Ráðherrar og hjálpist að. Það er svo miklu fallegra en að stofnanir Ríkisins taki sér stöðu gegn saklausum fórnarlömbum, skapi óvissu og óeiningu og detti í einhvern sandkassaleik með óeðlilegar og þröngar túlkanir á lagabókstaf sem ekki var skrifaður með svona atvik í huga. Vinnum saman, endurgreiðum úr tryggingunum þeim sem eiga rétt á því hratt og örugglega og stuðlum að heilbrigðu viðskiptaumhverfi ferðaskrifstofa. Ferðaþjónusta Mest lesið Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent Gengi Alvotech hrynur Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Sjá meira
Svar Tango Travel vegna tilkynningar Ferðamálastofu sem birtist á vefsíðu þeirra dagsettri 1. október 2025. Tilgangur Ferðamálastofu í svona málum er augljós. Ferðaskrifstofur liggja inni með tryggingar auk þess sem þær greiða iðgjald í Ferðatryggingasjóð. Ef aðstæður koma upp á markaði þar sem ferðaskrifstofu er ekki unnt að standa undir skuldbindingum sínum þá eiga viðskiptavinir skýlausan rétt á greiðslu úr sjóðnum vegna ófarinna pakkaferða. Það má færa sterk rök fyrir því að þessum reglum var ekki ætlað að taka á því þegar helmingur af öllum farþegaflugfélögum á Íslandi fer í gjaldþrot og skilur eftir sig holu sem er erfitt fyrir markaðinn í heild að eiga við. Í raun mætti skoða þetta sem Force majeure atvik. Auk þess höfðu stjórnvöld eftirlitsskyldu sjálf með flugfélaginu og voru í gegnum ráðgjafafyrirtæki nýlega búin að gefa það út að flugfélagið væri öruggt um næstu framtíð, skv. upplýsingum frá Eyjólfi Ármannsyni innviðaráðherra. Með þetta í huga gæti Ferðamálastofa með auðveldum hætti komið til móts við ferðaskrifstofur og ýtt þeim í gegnum þennan skafl, skafl sem ferðaskrifstofur áttu engan þátt í að skapa og eiga enga sök að máli. Eini glæpur þeirra er að hafa verslað við íslenskt flugfélag sem var undir eftirliti íslenskra stjórnvalda. Varðandi gjaldþrot eða ekki gjaldþrot og vilja Ferðamálastofu að standa við eigin skuldbindingar… Með tilkynningu sinni sem birt var á vefsíðu Ferðamálastofu 1. nóv 2025 segir Ferðamálastofa orðrétt: “Kjósi ferðaskrifstofa að hætta rekstri, án þess að hún fari fram á gjaldþrotaskipti, þarf ferðaskrifstofa að aflýsa ferðum viðskiptavina sinna og endurgreiða þeim þær. Þannig að á meðan félagið er enn starfandi og hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota eiga farþegarnir að beina kröfum sínum til félagsins, ekki til Ferðatryggingasjóðs.” - Þessi setning er bæði röng og orðalag hannar meiðandi. Í fyrsta lagi þá er ógjaldfærni og gjaldþrot ekki sami hluturinn þótt Ferðamálastofa stilli því þannig upp. Það er ekki gerð krafa í lögum um það að ferðaskrifstofa verði að fara fram á eigið gjaldþrot til þess að greitt sé úr tryggingasjóðnum, það eru aðrir mjög skýrir möguleikar. Einnig er það ekki svo að Tango Travel kjósi að hætta rekstri eins og það sé eitthvað val um það. Ferðaskrifstofan Tango Travel er neydd til þess að stöðva rekstur vegna þess að sá peningur sem félagið hafði undir höndum hefur allur farið í það að bjarga viðskiptavinum heim sem voru erlendis þegar fall flugfélagsins átti sér stað og að standa við þær ferðir þar sem stutt var í brottför enda búið að greiða allan kostnað erlendis vegna gistingar, viðburða, rútuferða o.s.frv. Að klára ekki slík verkefni hefði ollið mun meiri fjárhagslegum skaða ef ekki hefði verið ráðist í þær aðgerðir. Ferðamálastofa segir einnig neðar í sömu grein: “Ferðatryggingasjóður endurgreiðir m.ö.o. ekki þegar ferð fellur niður nema ferðaskrifstofan hafi í raun hætt starfsemi vegna gjaldþrots og leyfið fellt niður í kjölfarið. Upplýsingar um annað eru því ekki réttar.” - Hér má aftur sjá hvernig Ferðamálastofa afbakar lögin og reynir enn og aftur að halda því fram að gjaldþrot sé eina leiðin. Þetta er rangt og skv. lögum dugir ógjaldfærni og einnig hefur Ferðamálastofa heimildir sjálf til að fella niður ferðaskrifstofuleyfið og virkja tryggingar. Ferðamálastofa er semsagt tvísaga hvað varðar niðurfellingu á ferðaskrifstofuleyfinu. Í umræddri grein segir hún eftirfarandi: “Ferðatryggingasjóður endurgreiðir aðeins greiðslur, sem ferðamenn hafa greitt fyrir pakkaferðir, ef ferðaskrifstofa verður ógjaldfær/gjaldþrota, eða ef ferðaskrifstofuleyfið er fellt niður að frumkvæði Ferðamálastofu vegna vanskila ferðaskrifstofu á greiðslu gjalda í Ferðatryggingasjóð eða ákvörðuð trygging ferðaskrifstofu hefur ekki verið lögð fram.” - Síðan á öðrum stað á vefsíðu sinni, í kafla sem heitir Útgreiðslur, undir Ferðatryggingasjóði, segir eftirfarandi: “Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar, sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning, óháð fjárhæð tryggingar sem viðkomandi seljandi lagði fram, komi til ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda eða ef leyfi hans er fellt niður vegna vanefnda á lögbundnum skyldum”- Þarna kemur fram að Ferðamálastofu sé heimilt að fella niður ferðaskrifstofuleyfi Tango Travel og hefja útgreiðslur úr tryggingum ef Tango hefur ekki sinnt sínum lögbundnu skyldum… en ekki bara vegna vanskila á greiðslu gjalda. Samkvæmt þessu getur Ferðamálastofa svipt Tango Travel ferðaskrifstofuleyfi sínu strax í dag og hætt að flækja málin og greitt farþegum úr tryggingum Tango Travel og eftir atvikum úr Ferðatryggingasjóði ef þörf krefur, enda er Tango Travel ekki að ná að uppfylla sínar lögbundnu skyldur, þ.e. að standa við pakkaferðir viðskiptavina sinna. Þá bendir Ferðamálastofa neytendum á að leita til Tango Travel með sín mál. Tango Travel hefur hætt rekstri og er ógjaldfært, Tango Travel getur ekki gert neitt meira, það ætti að vera ljóst. Einnig benda þeir neytendum að ræða við Kærunefnd vöru og þjónustu. Hvað eiga þeir að gera ? Það stendur ekki neinn ágreiningur um rétt fólksins til að fá sínar ferðir endurgreiddar! Sá réttur er ótvíræður og lögbundinn. Með þessu gerir Ferðamálastofa ekkert nema að flækja málin fyrir neytendum og skapa óvissu og óþægindi fyrir alla aðila. Þeir vita alveg að ferðaskrifstofutryggingarnar eiga að taka á þessu og það er lélegt að afvegaleiða saklaust fólk. Tango Travel hefur fengið fjölda tölvupósta í kjölfarið á þessum skilaboðum frá Ferðamálastofu, frá fólki sem heldur nú að það sé að missa peninginn sinn og líður mjög illa. Höfum þetta alveg á hreinu, allir munu fá endurgreitt vegna ferða sem ekki eru farnar. Þeir munu fá endurgreitt frá Ferðamálastofu alveg sama hvað þau raula eða tauta. Það er bara skýrt í lögunum og það þýðir ekkert fyrir Ferðamálastofu að benda í allar áttir og afvegaleiða fólk. Einnig benda þeir á kortafyrirtækin. Það er áhugavert að skoða þann punkt. Ekkert er tekið fram í lögum eða reglugerðum að kortafyrirtæki eigi að greiða til viðskiptavina á undan ferðaskrifstofutryggingunum sjálfum, sem eru sérstaklega hannaðar til þess að gera einmitt það. Það er einnig óljóst hvort kortafyrirtækin eigi í kjölfarið kröfurétt á ferðatryggingasjóð og eru þá tryggir með sínar endurgreiðslur eða hvort þeir eigi bara almennan kröfurétt í félagið sjálft. Þetta er mikilvægt vegna þess að það væri óráðlegt fyrir kortafyrirtækin að taka á sig það fjárhagslega tap ef þeir eiga ekki rétt á kröfu í sjóðinn. Eðlilegast væri fyrir kortafyrirtækin að vísa þessu aftur til Ferðamálastofu enda eru tryggingarnar þar til staðar sem eiga að taka á þessu. Gott er að minnast á það að þetta er ekki bara tryggingasjóðurinn sem um ræðir heldur á Tango Travel (eða réttara sagt viðskiptavinir þess) tugi milljóna inni á reikningi handveðsettum Ferðamálastofu sem þau liggja núna á eins og ormur á gulli og benda viðskiptavinum sem eiga rétt á þessum peningum að leita í allar aðrar áttir en til Ferðamálstofu sjálfrar, sem á skv. lögum að losa þennan pening til neytenda. Mikið væri gott ef Ferðamálastofa myndi núna sýna leiðtogahæfni á þessum erfiðum tímum fyrir margar ferðaskrifstofur og stíga fram með lausnir í stað þess að flækja málin og búa til vandamál. Hér á málið ekki að snúast um einhverja sýndar hörku í garð fórnalamba gjaldþrots flugfélags heldur að ýta þeim í gegnum skaflinn og stuðla að heilbrigðu og sterku umhverfi í ferðaþjónustunni. Eins og Tango Travel hafa fjölmargar aðrar ferðaskrifstofur þurft að verja öllu sínu lausafé í að bjarga sínum farþegum og höfum við séð nokkrar fréttir þess efnis í fjölmiðlum. Eigendur ferðaskrifstofa hafa nú þegar þurft að grípa til uppsagna á starfsfólki, þurft að veðsetja heimilin sín og taka önnur lán til að standa undir þessu fjárhagslega áfalli. Þetta er ekki eðlileg staða og ekki réttlát staða á nokkurn hátt. Ferðamálastofa hefur öll verkfæri sem þau þurfa til þess að standa sig miklu betur og getur innan lagarammans bæði virkjað tryggingar fyrir viðskiptavini Tango Travel og það sem væri enn betra, veitt lán úr sjóðnum til að dreifa úr áfallinu, greiða strax til neytenda og þannig varið hagsmuni sjóðsins með því að eiga góðar líkur á að fá peninginn aftur inn frekar en að missa hann út endanlega. Fyrir þá sem hafa áhuga á nánari lagalegri útfærslu á láni úr sjóðnum þá er hér fyrir neðan hugmynd sem lögfræðingur Félags Atvinnurekenda hefur þegar sett fram til fulltrúa Ferðamálastofu og Atvinnuvegaráðuneytisins. Þau hafa ekki enn, þegar þetta er ritað, slegið þetta út af borðinu en þó hefur Ferðamálastofa sjálf beitt sér harkalega gegn þessu þótt fulltrúar Ráðuneytisins virðast enn hafa áhuga á að leysa málin. Með þessari leið bjargast mikil verðmæti, mikilvæg störf og þá er aðkallandi út frá meðalhófsreglu að henni sé beitt enda krafa um gjaldþrot algerlega andstæð þeim markmiðum og úr öllu hófi á meðan önnur og vægari úrræði þjóna markmiðunum mun betur og með minni skaðsemi fyrir þá sem hlut eiga að máli. Tillaga lögfræðings Félags Atvinnurekenda: „Fyrir hendi er í ákveðnum tilfellum tímabundin ógjaldfærni sem kemur til vegna þess að ferðaskrifstofurnar hafa móttekið fjármuni frá ferðamanni og greitt fyrir ferð hans til þriðja aðila (Play o.fl.). Ferðamaðurinn á rétt á endurgreiðslu frá ferðaskrifstofunni en ferðaskrifstofan fær enga endurgreiðslu frá þriðja aðila. Til að vinna bug á þessu þarf ferðaskrifstofan smá svigrúm enda ógjaldfærni hennar aðeins tímabundin. Við þessar aðstæður hefur Ferðatrygginasjóður heimild til að greiða ferðamanninum beint sbr.: 26. gr. [Tryggingavernd. Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning og annast heimflutning ferðamanns sé farþegaflutningur hluti pakkaferðar, komi til ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda eða ef leyfi hans er fellt niður skv. 27. gr. Greiðsluskylda er til staðar hvort sem endanlegur samningur um pakkaferð hefur komist á eða ekki, enda sé sýnt fram á greiðslu með fullnægjandi hætti. Í framhaldi hefur Ferðatryggingasjóður heimild til að innheimta kröfuna á hendur viðkomandi ferðaskrifstofu: [26. gr. a. Endurkröfuréttur o.fl. Við greiðslu til ferðamanns úr Ferðatryggingasjóði stofnast krafa sjóðsins á hendur viðkomandi seljandaeða þrotabúi hans. Ferðatryggingasjóði er heimilt að ganga að tryggingu seljanda skv. 25. gr. a til fullnustu kröfu sem stofnast hefur á hendur seljanda eða þrotabúi hans. Komi til gjaldþrots seljanda nýtur krafa sjóðsins, sem ekki hefur fengist greidd að fullu af tryggingu seljanda, rétthæðar í samræmi við 1. mgr. 112. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, við gjaldþrotaskiptin. Heimildin til að gera þetta er augljós enda kemur skýrt fram að skilyrði fyrir greiðslu sé ógjaldfærni (má vera tímabundin) og beinlínis sagt að heimilt sé að gera endurkröfu á seljanda eða þrotabús hans en í því fellst seljandinn getur skv. lögunum verið gjaldfær síðar og þarf ekki að hafa verið tekinn til skipta. Þessi vegferð hefur augljóslega ekki fordæmisgildi utan þess þegar að stórt innlent flugfélag verður gjaldþrota og er auk þess í samræmi við meðalhófsreglu. Það sem er ekki í samræmi við meðalhófsreglu er að fara fram á að fyrirtæki (sem hefðu náð að leysa úr tímabundnum vanda sínum) séu gerð gjaldþrota áður en að greiðsla úr sjóðnum fer fram (auk þess sem að sú lögskýring er andstæð sjálfum texta laganna). Ég legg það til að Ferðatryggingasjóður hefjist strax handa við að greiða umræddar kröfur vegna þeirra sem telja sig tímabundið ógjaldfæra. Þetta leiðir af sér eftirfarandi: Slíkt bjargar fjölda góðra fyrirtækja frá gjaldþroti vegna atvika sem þau eiga enga sök á Það ver hagsmuni neytenda og trúverðuleika markaðarins Þetta ver frekar stöðu Ferðatryggingasjóðs sem mun eignast kröfur á félög í rekstri í stað þess að eignast kröfur í þrotabú. „ Endir á tillögu lögfræðings Félags Atvinnurekenda. Að lokum, Það er gríðarlega mikilvægt að þegar yfir samfélaginu dynur stóráfall eins og gjaldþrot annars af tveimur flugfélögum á landinu að við snúum öll bökum saman. Neytendur, ferðaskrifstofur, Ferðamálastofa, Ráðuneytin og Ráðherrar og hjálpist að. Það er svo miklu fallegra en að stofnanir Ríkisins taki sér stöðu gegn saklausum fórnarlömbum, skapi óvissu og óeiningu og detti í einhvern sandkassaleik með óeðlilegar og þröngar túlkanir á lagabókstaf sem ekki var skrifaður með svona atvik í huga. Vinnum saman, endurgreiðum úr tryggingunum þeim sem eiga rétt á því hratt og örugglega og stuðlum að heilbrigðu viðskiptaumhverfi ferðaskrifstofa.
Ferðaþjónusta Mest lesið Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent Gengi Alvotech hrynur Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Sjá meira