Skreytti hverfið fyrir eiginkonuna
Þó enn sé nokkuð langt til jóla hefur hinn bandaríski John Reichart undanfarna tvo mánuði eytt öllum frístundum sínum í að setja upp jólaskraut í hverfinu. Hann skreytti hverja einustu lóð í götunni á sinn kostnað. John hvetur fólk til að koma og skoða, en þó svo það gefi honum mikið að gleðja nágranna sína, geri hann þetta fyrst og fremst fyrir eiginkonuna.