120 fötluð börn á íþróttaleikum í Höllinni
Um 120 börn með fötlun tóku þátt í Allir með-leikunum, sem fóru fram í Laugardalshöll í dag. Leikarnir hófust klukkan tíu, þar sem frjálsar íþróttir voru í boði auk körfubolta, fótbolta og handbolta. Eftir hádegishlé leiddi mikill og langur dreki hópinn yfir í Ármannsheimilið þar sem þátttakendur reyndu við sig í allskonar tólum og tækjum í fimleikasalnum.